Aðalfundur Ungra athafnakvenna (UAK) fór fram 26. maí sl. í höfuðstöðvum Deloitte, þar sem ný stjórn og formaður voru kjörin fyrir starfsárið 2025 – 2026. Fundurinn markaði lok viðburðaríks starfsárs þar sem félagið stóð fyrir 16 viðburðum. Viðfangsefnin voru mörg en fyrir utan hefðbundna viðburði líkt og opnunarviðburð, fyrirtækjaheimsóknir og tengslakvöld má segja að megin áhersla ársins hafi verið á fjölbreytni, samheldni og drifkraft.
Á fundinum var gerð grein fyrir starfsemi og rekstri félagsins á liðnu starfsári og var ársreikningur félagsins borinn upp til samþykktar. Fjölmörg öflug fyrirtæki styrktu félagið á árinu, þar á meðal má nefna Sjóvá, Landsvirkjun, Arion banki, JBT Marel, Nasdaq, Deloitte, CCEP og Innes, ásamt fjölda annara fyrirtækja og er stjórn UAK þakklát fyrir styrkinn.

Lovísa Anna Finnbjörnsdóttir, meðeigandi og sviðsstjóri Fjármálaráðgjafar hjá Deloitte og Guðrún Ólafsdóttir, meðeigandi og sviðsstjóri Tækniráðgjafar sögðu frá sinni vegferð innan fyrirtækisins og hvernig áhugi á tækni og fjármálum leiddi þær að fjölbreyttum og krefjandi verkefnum í ráðgjöf. Þær lögðu áherslu á mikilvægi þess að sýna frumkvæði, vera óhrædd við áskoranir og að fylgja eigin áhugasviði, en að þeirra reynslu fylgja ábyrgð og tækifæri oft í kjölfar dugnaðar og sýnileika.

Erindið gaf innsýn í kraftmikið og alþjóðlegt starfsumhverfi Deloitte, þar sem mikið er lagt upp úr mannauði og tengslamyndun. Þær hvöttu félagskonur til að byggja upp og nýta sér tengslanetið, sækjast eftir tækifærum og vera óhræddar við að taka pláss, sérstaklega í karllægum geirum.

Að lokum var komið að kosningu til stjórnar og formanns. Fjórar stjórnarkonur, Bryndís Rún Baldursdóttir, Kamilla Tryggvadóttir, Ólöf Kristrún Pétursdóttir Blöndal og Sóley Björg Jóhannsdóttir luku tveggja ára stjórnarsetu og voru því fjögur stjórnarsæti laus fyrir nýtt starfsár 2025-2026. Einnig luku Alma Stefánsdóttir og Thelma Lind Valtýsdóttir árs setu sem varamenn.
Alls bárust ellefu löggild framboð til stjórnar en það voru þær Alma Stefánsdóttir, Embla Líf Hallsdóttir, Ingveldur Gröndal og Þóra Ólafsdóttir sem hlutu flest atkvæði. Halla Karen Johnsdóttir og Katrín Birna Kristensen hlutu næst flest atkvæði og munu sitja sem varamenn til eins árs.
Melkorka Mist Gunnarsdóttir var kjörin formaður fyrir starfsárið 2025-2026 en hún sat í stórn UAK 2024-2025.
Stjórn UAK þakkar félagskonum fyrir starfsárið sem er að líða en einnig fá Nóa Siríus og Deloitte kærar þakkir fyrir að styrkja viðburðinn.
Hér má sjá umfjöllun Viðskiptablaðsins um viðburðinn.











