
Annar viðburður vorannar hjá Ungum athafnakonum fór fram miðvikudaginn 18. febrúar í huggulegum sal Fantasíu. Kvöldið var tileinkað kvenheilsu og á svið stigu fjórar öflugar konur sem nálguðust efnið hver á sinn hátt. Rauði þráðurinn í öllum erindum var þó skýr: mikilvægi þess að taka mið af kvenlíkamanum, hlusta á þarfir hans og byggja upp sjálfsöryggi og styrk á eigin forsendum. Félagskonum var gefinn veglegur gjafapoki með ýmsum vörum og afsláttarkóðum í boði R8iant, Bláa Lónsins, Innes, CCEP og ELLO.
Birta viðskiptastjóri UAK hóf kvöldið á að bjóða gesti velkomna, kynnti dagskrána stuttlega og fór yfir upphaf miðasölu á ráðstefnu UAK áður en fyrsta erindi kvöldsins hófst.

Laufey Ólafsdóttir – ELLO
Fyrst á svið var Laufey Ólafsdóttir, frumkvöðull í tæknigeiranum og stofnandi heilsuappsins ELLO. Hún lýsir sér sem „girls-girl“, mömmu og eiginkonu og konu sem er „ekki quitter“. Appið kom út í október 2025 eftir fjögurra ára vinnu og náði 4. sæti á App Store á aðeins einum sólarhring.
Laufey fór með gesti í persónulega vegferð sína og las upp einlægt bréf sem hún skrifaði til eldri systur sinnar sem féll frá fyrir nokkrum árum. Hún sagði frá því hvernig systir hennar mótaði sjálfsöryggi hennar og kenndi henni að trúa á sjálfa sig. „Ef ég tæki úr mér hjartað og myndi skapa eitthvað úr því,“ sagði hún, „þá væri það þetta app.“
Hún lagði áherslu á að líðan vegi þyngra en útlit. Sjálf byrjaði hún í líkamsrækt 18 ára gömul og fann sig ekki strax. Með tímanum kviknaði áhugi á styrktarþjálfun og hún heillaðist sérstaklega af rassaþjálfun og fræðslu um líkamsrækt kvenna. Hún fjallaði um hvernig líkamar okkar bregðast við æfingum og hvernig tíðarhringurinn speglar árstíðir, kvenlíkaminn er ekki línulegur heldur hringrás.
ELLO byggir á þremur stoðum: líkamlegri, félagslegri og andlegri heilsu og er appið allt með kvenlegu yfirbragði. Laufey minnti á mikilvægi þess að konur lyfti þungu, enda verði bein viðkvæmari með hækkandi aldri. Hún fór yfir fimm lykilatriði: kreatín, prótín, að lyfta þungu, að forðast dópamín-eltingaleikinn og að þekkja sitt eigið „why“. Hún vitnaði þar í hlaðvarpið „Finding your why” sem fjallaði um það að æskuminningar hafi mótandi sterk áhrif á drifkraft okkar og ákvarðanatökur síðar meir.
„Ég vona að þið njótið þess að prófa hjartað í mér,“ sagði hún að lokum og hvatti konur til að fjárfesta í framtíðar-sjálfri sér.

Rakel Guðmundsdóttir og Sirrý Svöludóttir – Venja
Næstar á svið voru Rakel Guðmundsdóttir og Sirrý Svöludóttir, stofnendur bætiefnafyrirtækisins Venju. Þær deila þeirri sýn að skapa veröld þar sem hver kona býr við góða hormónaheilsu, þekkir sinn líkama og á auðvelt með að taka ákvarðanir sem styðja við hann. „Women are not small men“ sögðu þær og vitnuðu í þær fáu rannsóknir sem gerðar hafa verið á næringar og bætiefnaþörf kvenna, vítamín séu oftast skráð með ráðlögðum dagskammti karlmanna og sá skammtur einfaldlega minnkaður fyrir konur, en staðreyndin er sú að konur þurfa allt aðra nálgun.
Rakel og Sirrý kynntust á tengslaviðburði hjá sameiginlegum vini og lögðu áherslu á að vanmeta aldrei tengslamyndun. Rakel sagði Sirrý frá hugmynd sinni að einfalda bætiefnamarkaðinn, þar sem henni fannst ríkja óreiða og skortur á upplýsingum. Daginn eftir hittust þær á kaffihúsi og ræddu málin nánar.
Þær fjölluðu um rannsóknir sem sýna að ráðlagðir dagskammtar vítamína hafa lengi verið miðaðir við karlmenn og að konur borði almennt minna af lykilnæringarefnum en þær þurfa. Þær bentu á að konur hafi ekki verið teknar inn í klínískar rannsóknir fyrr en fyrir um 30 árum og að þekking á áhrifum lyfja og næringarefna á kvenlíkama sé enn takmörkuð.
Hormónakerfi kvenna er flókið og breytilegt – bæði yfir ævina og innan hvers mánaðar. Þær ræddu einnig um aukna áhættu á sykursýki og blóðsykursójafnvægi eftir tíðahvörf og mikilvægi þess að fræða konur betur um eigin líkama. Markmið þeirra með Venju er að einfalda valið og þróa vörur sem taka mið af mismunandi hópum kvenna á mismunandi æviskeiðum þeirra.

Helga Theodorsdóttir – Nuna Collective Wellness Studio
Síðust á svið var Helga Theodorsdóttir, stofnandi Nuna Collective Wellness Studio, sem hóf sitt erindi á að spyrja salinn einfaldlega: „Ertu í takt við eigið tempó?“
Helga fjallaði um hvernig lífstaktur okkar breytist og þær kröfur sem samfélagið setur á konur – að vera góðar eiginkonur, kærustur, mæður, vinkonur, dætur og samstarfskonur. Líkaminn starfar í takti, en umhverfið gerir það sjaldan. Orkan fer oft í að halda út í stað þess að byggja upp.
Hún sagði frá eigin vegferð; sem „gömul eróbik-gella“ sem var alltaf „on it“ þar til hún fann að það gaf henni ekki lengur gleði. Þegar hún bjó í Kaliforníu dró vinkona hennar hana loks í fyrsta barre-hópatímann og þar varð algjör hugarfarsbreyting. Hún fann hreyfingu sem byggði hana upp í stað þess að ganga frá henni.
Barre er kerfi, ekki bara æfingar. Það varð til sem endurhæfing fyrir ballerínu sem meiddist og byggir á meðvitund, styrk og tengingu frá iljum upp í höfuð. Helga lagði áherslu á að æfing eigi ekki að ganga frá manni heldur skilja mann eftir með góða tilfinningu.
„Hreyfing er kannski trend – en líkaminn er ekki trend,“ sagði hún. Kvenlíkaminn er ekki línulegur og þarf stuðning. Með því að finna eigið tempó getum við byggt upp styrk í takt við okkur sjálfar. Helga endaði sitt erindi á þeirri skemmtilegri setningu: „Ég er að byggja upp kynslóð af eldri konum sem eru hávaxnar, sterkar og pissa ekki á sig.”
Kvöldið var fræðandi og sameiginleg skilaboð voru skýr: Hlúum að líkamanum, hlustum á hann og byggjum upp styrk – líkamlegan, andlegan og félagslegan – á okkar eigin forsendum.










