Aðalfundur UAK 2025

In by Sóley Björg Jóhannsdóttir

Viðburður fer fram: 26/05/2025
Klukkan: 5:00 f.h. - 7:30 f.h.
Hvar: KPMG, Borgartún 27


Nú fer starfsári UAK að ljúka og því boðar stjórn til aðalfundar 26. maí nk. Fundurinn fer fram í húsakynnum Deloitte á Dalvegi 30, 5. hæð. Fundurinn hefst kl. 17:30, en húsið opnar kl. 17:00.

Fjórar stjórnarkonur munu ljúka stjórnarsetu sinni á aðalfundinum og óskum við því eftir framboðum í stjórn UAK 2025-2027. Einnig verða tveir varamenn kjörnir til eins árs. Allar þær félagskonur, 18 ára og eldri, sem skráðar hafa verið í félagið og greitt félagsgjöld a.m.k. 2 vikum fyrir aðalfund hafa rétt til að bjóða sig fram til stjórnar og hafa atkvæðisrétt.

Í framboðum til stjórnar skal sérstaklega kveða á um ef frambjóðandi býður sig einnig fram sem formaður félagsins. Formaður stjórnar þarf að hafa hlotið kosningu í stjórn félagsins til að verða kjörgeng í kjör formanns. Framboð þurfa að berast eigi síðar en kl. 23:59 föstudaginn 23. maí n.k. á umsokn@uak.is. Kosið verður í önnur embætti innan stjórnar á fyrsta stjórnarfundi nýs starfsárs.

Í framboðinu þar eftirfarandi að koma fram:

  • Fullt nafn
  • Kennitala
  • Titill (starf/nám)
  • Framboðstexti sem verður birtur á heimasíðu UAK að hámarki 150 orð
  • Mynd af frambjóðanda
  • Tekið skal fram ef frambjóðandi býður sig fram sem formann félagsins

Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:

  1. Kosning fundarstjóra og ritara
  2. Skýrsla stjórnar um starfsemi og rekstur á liðnu starfsári
  3. Ársreikningur kynntur fyrir liðið starfsár og borinn upp til samþykktar
  4. Lagabreytingar
  5. Kosning stjórnar
  6. Kosning formanns stjórnar
  7. Ákvörðun félagsgjalda
  8. Önnur mál

Á meðan á talningu atkvæða stendur munu við fá að heyra frá Lovísu Önna Finnbjörnsdóttir, meðeiganda og sviðsstjóra Fjármálaráðgjafar, og Guðrúnu Ólafsdóttur, meðeiganda og sviðstjóra Tækniráðgjafar. Þær munu flytja erindi og segja okkar frá störfum sínum hjá Deloitte.

Við minnum einnig á  ef þið komist ekki á aðalfundinn getið þið veitt umboðsmanni skriflegt umboð til  sækja aðalfund og fara með atkvæðisrétt fyrir ykkar hönd.

Allar félagskonur geta lagt fram tillögur til lagabreytinga og skal skilað eigi síðar en kl. 23:59 föstudaginn 23. maí n.k. á netfangið uak@uak.is.

Skráning á aðalfundinn er hafin hér. Það verður frábært að koma saman og fagna starfsárinu sem er að líða.

Hlökkum til að sjá ykkur!
_____________________________________

Guðrún gekk til liðs við Deloitte í upphafi árs 2023 sem einn af meðeigendum Deloitte. Hún er sviðsstjóri Tækniráðgjafar. Hún hefur unnið í upplýsingatæknigeiranum síðastliðinn rúman áratug sem ráðgjafi og stjórnandi. Guðrún er með B.Sc. gráðu í tölvunarfræði frá Háskóla Íslands og PMD stjórnendagráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Lovísa er einn af meðeigendum Deloitte ehf. og sviðsstjóri Fjármálaráðgjafar. Lovísa hefur víðtæka reynslu á sviði fjármálaráðgjafar þar sem hún hefur veitt ráðgjöf til stærstu félaga á íslenskum markaði. Lovísa er með B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði, M.Sc. gráðu í fjármálahagfræði og M.Acc. gráðu í reikningsskilum og endurskoðun frá Háskóla Íslands.

Skráning

Skráning er lokuð.