Aðalfundur

In by Bjarklind

Viðburður fer fram: 27/05/2021
Klukkan: 7:30 e.h. - 11:00 e.h.
Hvar: Gróska, Vatnsmýri


Nú fer starfsár UAK 2020-2021 að ljúka og sumarið handan við hornið. Aðalfundur UAK 2021 verður haldinn fimmtudaginn 27. maí n.k. í Grósku. Húsið mun opna kl. 19:00 og hefst fundurinn kl. 19:30. Hólmfríður Kristín Árnadóttir, sérfræðingur í grænum fjármálum, sjálfbærni og stefnumótun hjá EY, mun flytja stutt erindi. Vigdís Hafliðadóttir, uppistandari, mun einnig koma fram og skemmta gestum. 

Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:

  1. Skýrsla stjórnar um starfsemi og rekstur á liðnu starfsári
  2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár kynntur og borinn upp til samþykktar
  3. Lagabreytingar
  4. Kosning stjórnar
  5. Kosning formanns stjórnar
  6. Ákvörðun félagsgjalda
  7. Önnur mál

Allar félagskonur geta lagt fram tillögur til lagabreytinga og skal skilað eigi síðar en kl. 23:59 þriðjudaginn 25. maí n.k. á netfangið uak@uak.is. Lagabreytinganefnd UAK hefur unnið að breytingum á lögum sem má finna hér. Núverandi lög félagsins má finna hér.

Þrjár stjórnarkonur munu ljúka stjórnarsetu sinni á aðalfundinum og óskum við því eftir framboðum í stjórn UAK 2021-2023. Allar þær félagskonur, 18 ára og eldri, sem skráðar hafa verið í félagið og greitt félagsgjöld a.m.k. 2 vikum fyrir aðalfund hafa rétt til að bjóða sig fram til stjórnar og hafa atkvæðisrétt. Í framboðum til stjórnar skal því sérstaklega kveða á um ef frambjóðandi býður sig einnig fram í formann félagsins. Formaður stjórnar þarf að hafa hlotið kosningu í stjórn félagsins til að verða kjörgeng í kjör formanns. Framboð þurfa að berast eigi síðar en kl. 23:59 mánudaginn 24. maí n.k. á umsokn@uak.is. Kosið verður í önnur embætti innan stjórnar á fyrsta stjórnarfundi nýs starfsárs.

Í póstinum skal koma fram:

  • Fullt nafn
  • Kennitala
  • Titill (starf/nám)
  • Framboðstexti sem verður birtur á heimasíðu og samfélagsmiðlum UAK að hámarki 150 orð
  • Mynd af frambjóðanda
  • Tekið skal fram ef frambjóðandi býður sig fram sem formann félagsins

Á aðalfundi verður borin upp sú lagabreytingatillaga að við stjórn félagsins bætist tveir varamenn. Verði sú tillaga samþykkt munu lögin taka strax í gildi og þær félagskonur sem buðu sig fram og voru næstar á lista inn í stjórn gegna hlutverki varamanna. Varamenn eru kjörnir til eins árs í senn. Frambjóðendur munu kynna sig á fundinum og viðstaddar félagskonur kjósa. Skráning á aðalfundinn er hafin hér á heimasíðu félagsins.

Það verður frábært að koma saman og fagna liðnu starfsári. Við í stjórn UAK fylgjumst vandlega með fyrirmælum stjórnvalda og verður framkvæmd aðalfundarins í takt við þær sóttvarnareglur sem eiga við þann 27. maí.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Skráning

Skráning er lokuð.