Fyrirtækjaheimsókn til UN Women á Íslandi

In by Athena Neve Leex

Viðburður fer fram: 26/11/2024
Klukkan: 7:00 e.h. - 9:30 e.h.
Hvar: Mannréttindahúsið, Sigtún 42


Fyrirtækjaheimsókn haustannarinnar er til UN Women á Íslandi. UN Women á Íslandi er ein af þrettán landsnefndum UN Women, stofnunar Sameinuðu þjóðanna um jafnrétti og valdeflingu kvenna. Meginhlutverk UN Women er að afnema ofbeldi gegn konum og stúlkum, veita kvenmiðaða neyðaraðstoð, útrýma fátækt, efla pólitíska þátttöku kvenna, frið og öryggi.

Dagskrá:

  • Opnunarávarp: Ólafur Einarson, varaformaður UN Women á Íslandi 
  • Hvernig starfa Sameinuðu þjóðirnar og skiptir starf þeirra máli fyrir framtíðina? Vala Karen Viðarsdóttir framkvæmdarstjóri Sameinuðu þjóðanna
  • Starf UN Women á heimsvísu – Stella Samúelsdóttir framkvæmdarstýra UN Women á Íslandi
  • Segðu já! Erindi Önnu Steinsen stjórnarformanns UN Women á Íslandi
  • Janfréttismál í samhengi við stöðu heimsmála – Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi utanríkisráðherra og stjórnarkona UN Women á Íslandi
  • Heimsherferð UN Women á Íslandi 2025 – Elva Hrönn Hjartardóttir leiðtogi stafrænnar markaðssetningar UN Women á Íslandi
  • Lokaorð og hugvekja Agnes Brynjarsóttir varaforseti ungmennaráðs UN Women á Íslandi

Við viljum vekja athygli á því að það verður pop up markaður þar sem gefst tækifæri á að versla fallegar jólagjafir sem jafnframt eru stuðningur við verkefni UN Women á heimsvísu, happdrætti, veitingar og notaleg stemning í skammdeginu.

Það er takmarkaður fjöldi plássa í boði og því mikilvægt að skrá sig!

Hlökkum mikið til að sjá ykkur! 

Skráning

Skráning er lokuð.