Innri taktur & trúnó

In by Sóley Björg Jóhannsdóttir

Viðburður fer fram: 11/02/2025
Klukkan: 6:00 e.h. - 9:00 e.h.
Hvar: Vinnustofa Kjarval, Austurstræti 10a


Þann 11. febrúar stendur UAK fyrir viðburðinum Innri taktur og trúnó. Viðburðurinn fer fram í glænýjum veislusal Vinnustofu Kjarval, Fantasía við Austurstræti 10a.

Húsið opnar kl. 18:00 og hefst viðburðurinn stundvíslega kl. 18:30.

Markmiðið með viðburðinum er að eiga saman notalega kvöldstund þar sem félagskonum gefst tækifæri til þess að rækta líkama og sál. 

Dagskrá viðburðarins hefst á fræðslu frá Geðhjálp um mikilvægi G-vítamíns. Una Kolbeins sem hefur mikla ástríðu fyrir djúpri vellíðan mun svo taka við og leiða okkur í gegnum slökunar æfingu þar sem félagskonur geta kúplað sig út.

Í kjölfarið býðst félagskonum tækifæri á tengslamyndun og trúnó sem verður leidd af stjórnarmeðlimum UAK.

Léttar veitingar, drykkir og gjafapokar verða í boði á viðburðinum.

ATH! Mikilvægt er að mæta með dýnu/jógahandklæði og mælum við með því að mæta í þæginlegum og nokkuð hlýjum fötum til þess að geta haft það notalegt í slökuninni.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Una Kolbeinsdóttir

Una hefur mikla ástríðu fyrir djúpri vellíðan og að skapa rými þar sem fólk getur kúplað sig út og slakað á til að hlaða batteríin í hröðu samfélagi.

Hún er með sálfræðigráðu og stundar meistaranám við Háskólann á Bifröst

Una er jógakennari, markþjálfi og starfar sem skrifstofustjóri ásamt því að halda endurnærandi jóga námskeið í Hilton Nordica.

Hún hefur tekið ýmis auka réttindi í kennslu en er lærð í Yin Yoga, Yoga Nidra, Hatha Yoga, Vinyasa Yoga, Power Yoga, Roll Model Method og Bandvefslosun.

Skráning

Skráning er lokuð.