Viðburður fer fram: 12/12/2024
Klukkan: 7:30 e.h. - 10:00 e.h.
Hvar: Bingo Drinkery, Skólavörðustígur 8, gengið inn að aftan. 2. hæð
Jæja kæru félagskonur,
Nú fer desember mánuður að ganga í garð og það styttist því heldur betur í jólin! Því er tilvalið að hittast og hafa það huggulegt saman á síðasta viðburði haustannar, spjalla og spila. Við ætlum að njóta samverunnar á Bingo Drinkery, fimmtudaginn 12. desember og draga fram bingóspjöldin. Húsið opnar kl. 19:30 og bingófjörið hefst kl. 20:00. Það verða vinningar fyrir sigurvegara og síðan nægur tími fyrir skemmtilega tengslamyndun, spjall og jólakósý.
Bingo Drinkery er einstaklega notalegur staður sem var opnaður í nóvember árið 2022, en hann er skreyttur nánast einungis með gömlum munum sem fundnir voru í góða hirðinum eða kjallaranum hjá ömmum og öfum stofnendanna sem setur jú punktinn yfir i-ið þegar kemur að notalegheitum og segir allt sem segja þarf um stemninguna þar inni.
Við hvetjum ykkur eindregið til að mæta með jólaskapið í jólapeysum eða með jólahúfur!
Hlökkum mikið til að hringja inn jólin saman, sjáumst hressar❤️
Jólakveðja,
Stjórn UAK
Skráning
Skráning er lokuð.

