Viðburður fer fram: 10/09/2024
Klukkan: 7:30 e.h. - 10:00 e.h.
Hvar: Gróska hugmyndahús, Bjargargata 1
UAK byrjar nýtt starfsár með pompi og prakt í Grósku, þriðjudaginn 10. september. Vekjum athygli á að viðburðurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á starfi félagsins.
Húsið opnar kl. 19:30 og hefst dagskrá stundvíslega kl. 20:00.
Dagskrá kvöldsins:
Kynning á nýju starfsári UAK
Ólöf Kristrún Pétursdóttir Blöndal, formaður
Hvað gerist ef ég tala um drauma mína upphátt? – Að mæta óttanum við að mistakast
Helga Sigrún Hermannsdóttir og Annie Thorisdottir
Blómstraðu og dreymdu stórt: Lykillinn að velgengni og vellíðan
Þóra Hrund Guðbrandsdóttir og Erla Björnsdóttir
Léttar veitingar og tengslamyndun
Viðburði lýkur 22:00
Aðgangur er ókeypis og hleypt inn á meðan húsrúm leyfir.
Við hlökkum til að sjá ykkur, vonandi sem flest!
Helga Sigrún Hermannsdóttir, Meðstofnandi og Rannsókna-og vöruþróunarstjóri Dóttir Skin
Helga Sigrún Hermannsdóttir er verkfræðingur með sérhæfingu í hagnýtri efnafræði, þar sem hún lagði sérstaka áherslu á sólarvarnarformúlur. Allt frá 2018 hefur Helga verið virk á samfélagsmiðlum þar sem hún deilir með fylgjendum sínum ástríðu sinni fyrir vísindunum á bak við snyrtivörur, og þá einni inn í sín störf sem frumkvöðull og vísindamann og hins vegar hennar persónulega líf sem ung kona. Helga hefur einnig talað opinskátt um geðheilbrigði, missi og lífið með ADHD, með það að markmiði að varpa ljósi á það að lífið er marglaga og flóknara en einfaldar glansmyndir gefa til kynna.
Annie Thorisdottir, Atvinnu íþróttamaður og meðstofanandi Dóttir skin
Annie Mist hefur verið atvinnu íþróttamaður seinustu 15 ár og í gegnum feril sinn unnið með fjölmörgum vörumerkjum allt frá því að þróa og hanna sína eigin skó yfir í að fjárfesta í þeim merkjum sem hún hefur mesta trú á. Núna er hún kominn á þann stað að hana langar til að fylgja sínum draumum og þróa og hanna það sem hún hefur mesta ástríðu fyrir. Hún stofnaði Empower æfingaprógram fyrir konur á breytingaskeiði og núna Dóttir skin þar sem fyrsta vara á markað er sólarvörn. Hún hefur alltaf hugsað um heilbrigði líkama og huga. Mataræði er mikilvægur hluti en einnig skiptir það miklu máli hvað við setjum á okkur. Annie átti erfitt með að nota sólarvörn vegna viðkvæmnar húðar og stinga í augum þegar hún var að æfa. Það endaði í því að vilja búa til sína eigin vöru í samráði við Helgu Sigrúnu og Katrínu Tönju.
Dr. Erla Björnsdóttir, Stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns
Dr. Erla Björnsdóttir er klínískur sálfræðingur með doktorspróf í líf og læknavísindum. Erla hefur sérhæft sig í greiningu meðferð við svefnleysi og vinnur að rannsóknum á því sviði. Hún hefur birt fjölda greina í erlendum ritrýndum tímaritum og einnig skrifað um svefn á innlendum vettvangi. Erla hefur haldið fjölda fyrlestra og námskeiða og má þar helst nefna fyrirlestra og fræðslu um svefn og svefnvenjur fyrir fyrirtæki og hópa ásamt því að vera með hópnámskeið við svefnleysi. Erla sinnir kennslu og rannsóknum hjá Háskólanum í Reykjavík og er stofnandi og framkvæmdastjóri Betri svefns. Erla gaf nýverið út smáforritið SheSleep sem er fyrsta svefn smáforrit í heiminum sem er sniðið að konum og þeirra þörfum
Þóra Hrund Guðbrandsdóttir, Eigandi MUNUM og framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar
Þóra Hrund er ævintýragjarn upplifunarhönnuður, mannræktarmógull og frumkvöðull sem elskar að láta hugmyndir, drauma og verkefni verða að veruleika. Hún elskar jafnvel ennþá meira að styðja við aðra í persónulegum vexti og að láta drauma verða að veruleika. Þóra Hrund er viðskipta- og markaðsfræðingur, að ljúka meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun ásamt því að vera mark- og teymisþjálfi. Þóra Hrund starfar nú sem framkvæmdastjóri Markaðsstofu Hafnarfjarðar ásamt því að vinna að eigin verkefnum tengd ráðgjöf, stefnumótun, verkefnastjórnun, viðburðastjórnun, upplifunarhönnun og markaðsráðgjöf.
Helsta markmið UAK er að stuðla að jafnrétti, hugafarsbreytingu og framþróun í íslensku samfélagi. Félagið skapar vettvang fyrir konur til að fræðast, hvetja og efla hvor aðra. Hægt er að kynna sér starfsemina og skrá sig í félagið á heimasíðu UAK: www.uak.is





