Opnunarviðburður haust 2025 – Byggjum okkar eigin framtíð

In by Alma Stefánsdóttir

Viðburður fer fram: 09/09/2025
Klukkan: 7:30 e.h. - 10:00 e.h.
Hvar: Salurinn tónlistarhús, Hamraborg 6


UAK snýr aftur eftir sumarfrí og byrjar nýtt starfsár með pompi og prakt í Salnum tónlistahúsi, Kópavog, þriðjudaginn 9. September.

Opnunarviðburður starfsársins ber yfirskriftina Byggjum okkar eigin framtíð og miðar að því að efla félagskonur og veita ykkur innblástur frá mögnuðum fyrirmyndum með breiðan bakgrunn. Árangur er einstaklingsbundinn, framtíðarsýn okkar mótast dag frá degi og fyrirlesarar kvöldsins eiga það allar sameiginlegt að hlusta á sitt sterka innsæi.

Húsið opnar kl. 19:30 og hefst dagskrá stundvíslega kl. 20.00. Viðburðinum lýkur kl. 22.00. Viðburðurinn er öllum opinn, ekki þarf að vera félagskona, og aðgangur er ókeypis. Við hvetjum þig til þess að fjölmenna á viðburðinn með konunum í þínu lífi – vinkona, amma, móðir, sjúpmóðir, tengdamóðir, frænka, samstarfskona eða jafnvel nágrannakonu. Við hvetjum sérstaklega þær sem þekkja lítið til félagsins og sjá fram á að mæta einar, að taka skrefið út fyrir þægindarammann, mæta og kynnast félaginu og nýjum félagskonum.


Húsið opnar kl. 19:30 og hefst dagskrá stundvíslega kl. 20:00.

Dagskrá kvöldsins:

  • Kynning á nýju starfsári UAK og dagskrá
    Melkorka Mist Gunnarsdóttir, formaður UAK
  • Frá draumi til dagsins í dag
    Eva Ruza, útvarpskona, skemmtikraftur og kynnir
  • Ástríða og árangur
    Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju og fyrrum stjórnarkona UAK
  • Gellur elska pening
    Íris Líf Stefánsdóttir, eigandi Accounta Bókhald og fjármála áhrifavaldur

Léttar veitingar og tengslamyndun fyrir og eftir viðburð. Viðburði lýkur 22:00.

Aðgangur er ókeypis og hleypt inn á meðan húsrúm leyfir.

Við hlökkum til að sjá ykkur, vonandi sem flest!

 

Eva Ruza, Útvarpskona, skemmtikraftur og kynnir

Eva Ruza hefur starfað í íslenskum skemmtibransa í áratug og hefur á þeim tíma skapað sér trausta stöðu bæði á sviði, í útvarpi og á skjánum. Hún starfar meðal annarra verkefna á útvarpsstöðinni K100 þar sem hún stýrir hinum vinsæla þætti, Bráðavaktinni, ásamt vini sínum Hjálmari Erni. Þá sér hún einnig um Stjörnufréttir á hverjum virkum degi á K100 og mbl.is þar sem hún flytur fólki fréttir af fína og fræga fólkinu úti í heimi. Eva hefur jafnframt komið að fjölmörgum sjónvarpsverkefnum, auglýsingum og komið að markaðstengdu efni fyrir fjölda fyrirtækja.

Fyrir utan fjölmiðlastörf er Eva eftirsóttur kynnir á alls kyns viðburðum og hefur jafnframt byggt upp öfluga samfélagsmiðla í gegnum árin. Þar nær daglega til stórs hóps fylgjenda og tekst að gleðja landann með misgóðri eldamennsku og almennri gleði.

Karen Ósk Gylfadóttir, Framkvæmdastjóri Lyfju og fyrrum stjórnarkona UAK

Bio: Karen tók við sem framkvæmdastjóri Lyfju haustið 2024, eftir að hafa leitt markaðs-, vörusvið og stafrænar lausnir fyrirtækisins frá árinu 2021. Frá því að Karen Ósk hóf stöf hjá Lyfju hefur hún borið ábyrgð á stefnumarkandi verkefnum, nýsköpunarverkefni á borð við Lyfju appið, markaðsstefnu félagsins, vefverslun og þjónustuveri. Hún hefur einnig leitt uppbyggingu nýrrar heilbrigðisþjónustu – Lyfja Heyrn, ásamt því að bera ábyrgð á vöruvali, vörustýringu, verðstefnu, innkaupum og dreifingu í verslanir. Karen sat í stjórn UAK við stofnun félagsins, hefur setið í stjórn ÍMARK og ráðgjafastjórn Miðlunar.

Karen Ósk er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og tók stjórnendanám við Kellogg Northwestern háskólann vorið 2024. Hún starfaði áður lengst af hjá Nova, síðast sem markaðsstjóri en gengdi einnig stöðu sölu- og þjónustustjóra og viðburðastjóra. Karen var markaðssérfræðingur í markaðsdeild Íslandsbanka á árunum 2015-2017 ásamt því að koma að þjónustumálum og stefnumótunarverkefni bankans.

Íris Líf Stefánsdóttir, Eigandi Accounta Bókhald og fjármála áhrifavaldur

Íris er 24 ára viðurkenndur bókari, eigandi Accounta bókhaldsstofu, meðtsofnandi í hugbúnaðarfyrirtækinu Virkjum og áhrifavaldur á sviði fjármála. Hún er uppalin í Borgarnesi og fór í skiptimál til Ecuador á námsárunum til að stækka sjóndeildarhringinn. Íris stefnir hátt og hefur m.a. byggt upp spænskan fylgjendahóp með 100.000 fylgjendum á aðeins 6 mánuðum. Utan atvinnu og fjölbreyttra verkefna á sviði fjármála, er Íris eiginkona og móðir.

 

Helsta markmið UAK er að stuðla að jafnrétti, hugafarsbreytingu og framþróun í íslensku samfélagi. Félagið skapar vettvang fyrir konur til að fræðast, hvetja og efla hvor aðra. Hægt er að kynna sér starfsemina og skrá sig í félagið á heimasíðu UAK: www.uak.is