Má ég breyta til? – Vinnustofa með SAND og Hagvangi

In Opnunaviðburður UAK haustið 2025 by Ingveldur Gröndal

Þann 24. september síðastliðinn hélt Ungar athafnakonur sinn annan viðburð haustannar, að þessu sinni undir yfirskriftinni „Má ég breyta til?“  þar sem sjónum var beint að hvað er mikilvægt að hafa í huga þegar sótt er um starf, breytingum, sjálfstæðum ákvörðunum og leiðinni að draumastarfinu.

Viðburðurinn fór fram í Grósku og sérstaklega tileinkaður þeim sem standa á krossgötum og finna fyrir löngun til að breyta til. Dagskráin var fjölbreytt, fræðandi og hvetjandi. Það er óhætt að segja að félagskonur gengu út með fjölmörg verkfæri og innblástur til að stíga næstu skref. Fyrirlesarar kvöldsins voru stofnendur SAND markaðsstofu, þær Kristína Reynisdóttir og Unnur Ársælssdóttir, ásamt ráðgjöfum frá Hagvangi, þeim Stefaníu Hildi Ásmundsdóttur og Hallveigu Hafstað Haraldsdóttur. 

 Embla Líf Hallsdóttir ráðstefnustýra UAK bauð félagskonur velkomnar í upphafi kvölds og ávarpaði salinn með stuttri kynningu á haustdagskrá UAK og síðan að dagskrá kvöldsins.

Kristína Reynis og Unnur Ársæls

SAND – frá side hustle yfir í sápupung

Fyrstar á svið voru þær Kristína Reynisdóttir og Unnur Ársælsdóttir úr SAND markaðsstofu. Þær fóru yfir reynslu sína á persónulegum nótum. Þær eru með nokkuð ólíkan bakgrunn, fóru í gegnum fjölbreytta starfsreynslu og á tímalínu þeirra sameinuðust þær með því að stofna eigin fyrirtæki. Þær lýstu samstarfi sínu sem “ying og yang” og hvernig innsæi, hugrekki og húmor leiddi þær saman í frábærum fyrirtækjarekstri.

„Það versta sem getur gerst er eiginlega bara að ekkert gerist, en það versta er að taka ekki ákvörðun,” sagði Unnur um ákvarðanatökur í lífinu.

Unnur byrjaði á að segja frá sinni tímalínu með skemmtilegum sögum um hvernig hún endaði í starfsnámi í Barcelona hjá fasteignasölu yfir í upplifunar- og skrifstofustjórastöðu í Danmörku, síðar útskrifaðist hún með PBA í Danmörku, flutti heim til Íslands í Covid og starfaði þá sem viðskiptastjóri hjá Noona, síðan verkefnastjóri hjá Smart Solutions, og svo mættust leiðir þeirra Kristínu loks hjá Smitten. Unnur fór yfir hvernig hún var með mikið sjálfstraust – stundum og gerði grín að því að hún væru stundum með næstum einum of mikið sjálfstraust en það kom henni áfram í ótrúlegustu aðstæður. 

„Ég stóð á Strikinu í Kaupmannahöfn með skilti af Smitten, á dönsku þýðir það smitaður..af kynsjúkdómi” sagði Unnur þegar hún lýsti því hvernig þau hugsuðu ávalt út fyrir boxið í vinnunni hjá Smitten.  Í dag er Unnur orðin móðir og er í fæðingarorlofi.

„Mér fannst ég svo ómissandi í vinnunni, fannst erfitt að fara í fæðingarorlof” sagði Unnur og lýsti sinni upplifun að takast á við nýjar áskoranir og nýtt hlutverk sem móðir. Hún sagði það hafa verið krefjandi ferli að leiða Smitten í Bandaríkjunum og fann fljótt að þarna var hún ekki á réttum forsendum. Hún léttist mikið og náði ekki að sinna fjölskyldunni eins og hún hefði viljað.

„Það var ofboðslega frelsandi að finna að maður væri ekki ómissandi í vinnunni, sérstaklega konur við erum oft svo ómissandi, sem mæður, heima, í vinnu, sem maki og vinkona” sagði Unnur í kjölfarið og nú vinna þær Kristína saman í 5 manna teymi og eru komnar með skrifstofu hjá SAND markaðsstofu. 

Næst fór Kristína fór yfir sína tímalínu. Hún vann í félagsmiðstöð í 8 ár, vann síðan hjá Rent a party, útskrifaðist úr sálfræði í HÍ, fór í flugfreyjuna og síðan fjarnám í viðburðastjórnun í Háskólanum á Hólum og fann að þar lág áhuginn. Kristína er einnig móðir og lýsti sér sem ofvirkri týpu sem hentaði illa að sitja á skólabekk.

„Við föttuðum hjá Smitten að við vinnum vel saman” lýstu Unnur og Kristína og sögðu að það skemmtilegasta við að vinna hjá Smitten var að hugsa út fyrir kassann”.

Þær sögðu frá skemmtilegu verkefni þar sem þær létu gerua risastórann sápupung á Laugaveginum, fleiri stórum hugmyndum og því hvernig þær hjálpa fólki og vörumerkjum að byggja upp samfélag í kringum gildi og upplifanir, ekki bara vörur. Í dag eru þær með 5 manna teymi og eigin skrifstofu – og eru stöðugt að breyta til!


Vinnustofan var brotin upp með skemmtilegum verkefnum fyrir félagskonur
Stefanía og Hallveig buðu félagskonum að spyrja þær spjörunum úr

Hagvangur

 Að skara fram úr – leiðin að draumastarfið

„Fyrir um mánuði var ég í símanum og gat ekki sofnað, ég fékk þá hugmynd að senda UAK tölvupóst!” byrjaði Stefanía á að segja frá þegar hún fékk hugmyndina að þessu erindi. Það átti vel við því við í stjórn vorum einmitt með viðburð af þessu tagi. Að fá hagnýt ráð og æfingar til að gera þegar breyta á til í lífi og starfi.

Stefanía og Hallveig, ráðgjafar hjá Hagvangi, leiddu svo félagskonur í gegnum hagnýtt og hreinskilið erindi um allt sem snýr að atvinnuleit: frá ferilskrám og kynningarbréfum, yfir í atvinnuviðtöl og tengslanet. Erindið var brotið upp með skemmtilegum æfingum þar sem félagskonur æfðu sig í Þær tóku einnig virkt samtal við gesti og svöruðu fjölda spurninga úr sal.

„Yfir 80% starfa eru ekki auglýst,” sögðu þær og lögðu áherslu á mikilvægi tengslanets.

Þær tóku fyrir algengar spurningar um myndir á ferilskrám, hvernig meta eigi menntun og reynslu, og hvernig hægt sé að taka breytingum innan núverandi starfs – án þess að skipta endilega um starf.

„Draumastarfið er ekki beinn vegur – og stundum búum við það bara sjálfar til,“ sagði Stefanía og undirstrikaði sveigjanleika og möguleika nútíma vinnumarkaðar.


Spjall, spurningar og samhugur

Að lokum fóru fram líflegar umræður og spurningar úr sal. Fjallað var um hvernig dagarnir líða í vinnunni, almennar umsóknir hjá Hagvangi, innihald ferilskráa, hvað vekur áhuga ráðningafólks og hvernig við getum borið kennsl á styrkleika okkar og jafnframt tjáð þá á áhrifaríkan máta.

Viðburðurinn endaði á sterku skilaboði:
Þú ert ekki föst – þú mátt breyta til.


Þakkir og skráning

Við viljum koma á framfæri hjartans þökkum til fyrirlesara kvöldsins og styrktaraðila okkar: Hagvang og veitingar frá Innes.
Einnig þökkum við öllum kærlega sem tóku þátt og gerðu kvöldið eftirminnilegt.

Opið er fyrir skráningar í félagið – fyrir þær sem vilja efla sig, læra og tengjast geta skráð sig hér:
Nýskráning – Ungar athafnakonur

Kræsilegar veitingar í boði Innes

Núverandi stjórnarkonur tóku vel á móti nýskráðum félagskonum og fyrrum stjórnarkonan Amna.
Embla Líf ráðstefnustýra bauð félagskonur velkomnar

Myndir voru teknar af Þóru Ólafsdóttur, markaðsstjóra UAK.