Aðalfundur UAK 2020 fór fram miðvikudagskvöldið 27.maí síðastliðinn og var haldinn í sal Fiskmarkaðsins en 62 félagskonur sóttu fundinn. Snæfríður Jónsdóttir, fráfarandi formaður félagsins, byrjaði kvöldið á að fara yfir starfsárið og kynnti ársskýrslu félagsins. Þá tók Björgheiður Margrét Helgadóttir, fráfarandi fjármálastjóri, við og lagði fram ársreikning til samþykktar. Kolfinna Tómasdóttir, fráfarandi viðskiptastjóri, kynnti þær lagabreytingatillögur sem lágu fyrir og voru þær allar samþykktar og má finna þær á síðu félagsins. Ein tillagan var sú að fjöldi stjórnarkvenna hækki úr sex í sjö sem var samþykkt og því voru fjórar konur kosnar inn í stjórn.
Næst var komið að framboðsræðum, en 15 konur buðu sig fram til stjórnar.. UAK þakkar öllum frambjóðendum fyrir sitt framboð og gaman að segja frá því að þetta var metfjöldi framboða.
Auður Albertsdóttir, Kolfinna Tómasdóttir og Snæfríður Jónsdóttir hafa lokið sinni stjórnarsetu og UAK þakkar þeim fyrir ómetanlegt starf þeirra í þágu félagsins og hlökkum til að fylgjast með þessum fyrirmyndarkonum.
Nýjar konur inn í stjórn eru þær Andrea Gunnarsdóttir, Bjarklind Björk Gunnarsdóttir, Ingveldur María Hjartardóttir og Kristjana Björk Barðdal en kjörtímabil þeirra er tvö ár. Ásamt nýkjörnum stjórnarmeðlimum skipar stjórn UAK 2020-2021 þær Ömnu Hasecic, Björgheiði Margréti Helgadóttur og Völu Rún Magnúsdóttur, en þær hafa nú þegar setið í stjórn í 1 ár.
Við fengum að sjálfsögðu góða gesti á fundinn. Edda Björk Ragnarsdóttir, viðskiptastjóri á hugverkasviði Samtaka Iðnaðarins, sagði okkur frá hennar starfsferli og þeim hindrunum sem hún hefur þurft að komast yfir. Hún hvatti félagskonur til þess að sækja þau störf sem þær langar í, því það er víst að ef maður sækir ekki um – þá fær maður ekki starfið.
Karen Björg Þorsteinsdóttir, uppistandari, kom svo og kitlaði hláturtaugar félagskvenna við góðar undirtektir.
Stjórn UAK 2019-2020 þakkar félagskonum fyrir frábært starfsár og við hlökkum til að sjá ykkur á því næsta í haust.
Gleðilegt sumar!