The Impact of Diversity – Women’s Empowerment

In Fréttir by Melkorka Mist Gunnarsdóttir

Fjölbreytileiki skapar verðmæti og inngilding er á ábyrgð allra.

Þann 7. nóvember síðastliðinn stóð félag Ungra athafnakvenna (UAK) fyrir viðburðinum “The Impact of diversity – Women’s empowerment” með það að markmiði að varpa ljósi á reynslu kvenna af erlendum uppruna bæði í íslensku samfélagi og vinnumarkaði. Viðburðurinn var haldinn í Veröld – húsi Vigdísar þar sem fjöldi kvenna komu saman og ræddu áhrif og mikilvægi fjölmenningar og inngildingar ásamt því að heyra reynslusögur og fá innsýn inn í hindranir sem verða á vegi kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. 

Það var mikill samhljómur í fyrstu pallborðsumræðum þar sem Charlotte Jónsdóttir Biering, sérfræðingur í fjölbreytileika og inngildingu og Sigyn Jónsdóttir, tæknistjóri (CTO) og meðstofnandi Öldu fóru yfir stöðuna á íslenskum vinnumarkaði, hvað við getum gert og afhverju það skiptir máli fyrir fyrirtæki að leggja áherslu á að hafa fjölbreyttan starfshóp og inngildingu þvert á vinnustaði. Það kom fram að þótt að stjórnendur í fyrirtækjum virðast í auknu mæli hafa áhuga á að ræða þessi mál þá þarf að breyta viðhorfi og venjum til þess að stuðla að fjölbreytileika. Hægt er að leita til ýmissa sérfræðinga eða nýta tækni á borð við Öldu til þess að skapa vinnustaðamenningu þar sem öll flóra samfélagsins fær að njóta sín óháð hvaðan þau koma eða á hvaða forsendum. 

Athena Neve Leex, Charlotte Jónsdóttir Biering og Sigyn Jónsdóttir / Ljósmynd @Kristín Ásta Kristinsdóttir

Rannsóknir sýna að gríðarleg verðmæti skapast með fjölbreyttum mannauði, verðmæti sem felast í því að fólki líður vel á vinnustaðnum fái það að vera það sjálft. Fjölbreytt sjónarmið og víðtækari þekking styrkir vinnustaði, eykur samkeppnishæfni þeirra og vinustaðir eru betur í stakk búnir til að takast á við áskoranir og þ.a.l líklegri til að ná betri árangri. Þrátt fyrir þær niðurstöður eru Charlotte og Sigyn sammála því að við megum ekki sofna á verðinum. Þetta er ekki skammtímalausn heldur er það stöðugt ferli fyrir fyrirtæki og einstaklinga að breyta viðhorfi og venjum, því verðum við halda áfram að ýta undir samtalið í okkar umhverfi.

Þær Fida Abu Libdeh, stofnandi og framkvæmdastjóri GeoSilica, Grace Achieng stofnandi og framkvæmdastjóri Gracelandic og Lenya Rún Taha Karim lögfræðingur og varaþingmaður tóku þátt í seinni pallborðsumræðum kvöldsins sem snérist um að varpa ljósi á reynslusögur öflugra kvenna af erlendum uppruna á Íslandi. Þær eiga það allar sameiginlegt að hafa náð miklum árangri á sínu sviði og í einlægum frásögnum sögðu þær frá sinni vegferð. Það var slándi að heyra frá þeim stöðugu hindrunum sem þær hafa mætt og einkenndist umræðan þá mikið af öráreitni (e. microagression). 

Lenya Rún Taha Karim, Grace Achieng og Fida Abu Libdeh / Ljósmynd @Kristín Ásta Kristinsdóttir

Raunveruleikinn er sá að konur af erlendum uppruna fá ekki sömu tækifæri og er reynsla þeirra sú að þær þurfi að leggja enn harðar af sér til að uppskera sömu tækifæri. Framlög þeirra eru ekki metin sem skyldi, en það skiptir gífurlega miklu máli fyrir öll að vera metin af verðleikum, að fá að tilheyra og taka þátt í samfélaginu sem hluti af heild. 

Viðburðurinn varpaði skýru ljósi á mikilvægi þess að eiga stöðugt samtal og deila sinni reynslu. Með því að búa til öruggt umhverfi þar sem að bæði þátttakendur í pallborði og úti í sal gátu opnað sig myndaðist áhrifamikil umræða þar sem samstaðan og eldmóðurinn skein í gegn. Með aukinni vitundarvakningu getum við styrkt stöðu kvenna og bætt íslenskt samfélag, en það er sterkara þegar fjölbreyttir aðilar eiga þátt í því. 

Ungar athafnakonur þakka fyrir kraftmikinn, einlægan og þýðingarmikinn viðburð.

Nevæh Meiting Qin, Grace Achieng, Charlotte Jónsdóttir Biering, Ólöf Kristrún Pétursdóttir Blöndal / Ljósmynd @Kristín Ásta Kristinsdóttir
Guðleif Aþena Magnúsdóttir / Ljósmynd @Kristín Ásta Kristinsdóttir
Kehinde Kayode / Ljósmynd @Kristín Ásta Kristinsdóttir
Kamilla Antonina, Lilja María Árnadóttir og Athena Neve Leex / Ljósmynd @Kristín Ásta Kristinsdóttir
Charlotte Jónsdóttir Biering, Lenya Rún Taha Karim, Sigyn Jónsdóttir, Grace Achieng og Fida Abu Libdeh / Ljósmynd @Kristín Ásta Kristinsdóttir