Um UAK


Félagið Ungar athafnakonur (UAK) var upphaflega stofnað í maí 2014 af Lilju Gylfadóttur. UAK hóf formlega störf sín með stofnfundi félagsins í september sama ár.

Helsta markmið UAK er stuðla að jafnrétti, hugarfarsbreytingu og framþróun í samfélaginu. UAK vill gera allt sem í valdi félagsins stendur til að jafna stöðu kynja á íslenskum vinnumarkaði með því að styrkja stöðu og framtíð ungra kvenna sem stjórnendur og þátttakendur í atvinnulífinu. UAK vinnur að jafnrétti með fræðslu, umræðu og hvatningu. Með fjölbreyttum viðburðum fá félagskonur innsýn inn í ólíka upplifun kvenna út frá starfi þeirra og bakgrunni.

Félagskonur UAK eru með fjölbreyttan bakgrunn, ýmist komnar með reynslu af atvinnumarkaði eða í námi. UAK er jafnframt félag fyrir konur sem vilja skara fram úr á hinum ýmsu sviðum atvinnulífsins. Engin inngönguskilyrði eru í félagið og ekkert aldurstakmark en svo lengi sem konur finna sig í starfi félagsins þá eru þær velkomnar. Félagið er opið fyrir nýskráningum allt starfsárið og eru allar áhugasamar konur hvattar til að skrá sig.

UAK leitast við að skapa vettvang fyrir konur til að fræðast og efla hvor aðra. Því fylgir ómetanlegt tengslanet milli kvenna sem stefna að sams konar markmiðum á hinum ýmsu sviðum. Með viðburðum sínum vill UAK hjálpa félagskonum að auka styrkleika sína og er markmiðið með hverjum viðburði að fylla þátttakendur eldmóði, sama hvort um sé að ræða námskeið, fyrirtækjaheimsóknir eða fræðslufundi.

Skrá mig í félagið!