Tengsl, tækifæri og að taka pláss

Alma UAK • 29. september 2026

Share this article

Hún tengir - Tengslakvöld UAK 24.september

Tengslanet, mentorar og mikilvægi þess að koma sér á framfæri voru í forgrunni þegar Erna Hrund Hermannsdóttir og Arna Harðardóttir deildu reynslu sinni úr íslensku atvinnulífi. Í

 einlægu samtali ræddu þær meðal annars um að byggja markvisst upp tengsl, leita til fólks sem getur veitt ný sjónarhorn og segja já við tækifærum – jafnvel þegar maður er ekki alveg viss um að vera tilbúinn.

Erna Hrund sagði frá því hvernig hugmyndin að hlaðvarpinu “Hún tengir” varð til á tímamótum á hennar eigin starfsferli. Eftir stöðuhækkun hafði hún þrjá mentora sem hún sagði hafa reynst sér vel. Með tímanum áttaði hún sig þó á því að hún þyrfti einnig annars konar ráðgjöf og fyrirmyndir sem gætu tengt við þær áskoranir sem hún sjálf stóð frammi fyrir.

„Konur hafa svo mikið fram að færa“

Eftir mikla sjálfsskoðun tók Erna ákvörðun um að segja starfi sínu lausu. Á þessum tíma fór hún að opna sig meira við aðrar konur um þær áskoranir sem hún hafði upplifað í starfi. Fljótlega varð henni ljóst að hún var langt frá því að vera ein um þessa reynslu.

Það varð kveikjan að “Hún tengir”, þar sem Erna vildi ræða við konur sem hafa náð árangri í íslensku atvinnulífi og skapa vettvang þar sem þær gætu sagt frá eigin reynslu.


„Með hlaðvarpinu vildi ég gefa konum pall til að tala um sjálfa sig. Þær hafa svo mikið fram að færa.“

Erna býður viðmælendum sínum gjarnan í kaffi áður en upptökur hefjast til að kynnast þeim betur. Kaffibollinn sem hún tók með Örnu Harðardóttur varð þó óvenjulega langur, en samtalið stóð yfir í tvo til þrjá tíma. Þar hófust tengsl sem hafa síðan þróast áfram.

Arna Harðardóttir er forstjóri Helix, heilbrigðistæknifyrirtækis með um 45 starfsmenn. Hún hefur gegnt stöðu forstjóra í þrjú ár en fyrirtækið var áður hluti af Origo. Verkefni Örnu var að spinna starfsemina út í sjálfstætt fyrirtæki og hefur hún stýrt því síðan.

Í hennar huga gerast öflug tengslanet ekki af sjálfu sér.


„Það þarf hugrekki til að ákveða að byggja upp tengslin sín.“


Arna lagði sérstaka áherslu á mikilvægi mentora. Að hafa einhvern til að ræða við um næstu skref, áskoranir og að eigin þróun geti verið gríðarlega dýrmæt. Það þurfi heldur ekki að vera flókið að finna mentor. Stundum sé fyrsta skrefið einfaldlega að senda skilaboð á manneskju sem maður ber traust til og spyrja.

Erna tók undir þetta og hvatti konur til að láta vaða. Sá sem er beðinn um að gerast mentor geti sjálfur séð verðmæti í sambandinu enda sé lærdómurinn sjaldnast aðeins í aðra áttina.

Þær ræddu einnig um mikilvægi þess að leita ekki eingöngu til fólks sem er líkt manni sjálfum. Ólíkir mentorar geta veitt ólík sjónarhorn og stundum eru það einmitt ráðin frá fólki með allt annan bakgrunn sem reynast verðmætust.


Að taka pláss við borðið

Arna ræddi einnig reynslu sína af því að taka við stjórnendastöðu í karllægu umhverfi. Þegar hún tók við sem forstjóri var hún meðal annars spurð á ganginum hvort ráðning hennar væri tímabundin.

Á fundum upplifði hún jafnframt að erfitt gæti verið að ná athygli viðstaddra. Hún var vön því að vera eina konan við fundarborðið en upplifði jafnvel að ekki væri horft í augun á henni þegar hún talaði.


Þá fékk hún einfalt en áhrifaríkt ráð frá mentor sínum: Sestu fyrir miðju fundarborðinu, þar sem allir sjá þig.

Ráðið snerist um meira en sætaskipan. Það snerist um að taka pláss, hefja fundinn af krafti og gera sig sýnilega.


Reynsla Ernu og Örnu sýndi jafnframt hversu ólík ráð geta verið eftir því hver veitir þau. Þess vegna geti verið verðmætt að leita til ólíkra mentora – kvenna og karla, fólks með svipaðan bakgrunn og manns eigin en líka þeirra sem sjá hlutina frá allt öðru sjónarhorni.



„Með því að segja já kemst maður í ótrúlegar aðstæður“

Eitt af sterkustu stefjum samtalsins var mikilvægi þess að segja já.

Arna hvatti konur til að setja sig viljandi í nýjar og jafnvel óþægilegar aðstæður. Þróun í starfi þyrfti ekki alltaf að þýða nýr titill eða stjórnendastaða. Hún geti allt eins falist í því að taka að sér ný verkefni, prófa eitthvað óvænt og stíga reglulega út fyrir þægindarammann.

Skilaboðin voru einföld: Prófaðu. Segðu já, og jafnvel þótt eitthvað fari ekki fullkomlega er það allt í lagi.


Orðsporið fylgir okkur

Arna lagði einnig mikla áherslu á orðspor og þau áhrif sem framkoma okkar hefur til lengri tíma.

Þegar Arna hætti störfum hjá Ölgerðinni áttaði hún sig meðal annars á því hversu verðmætt tengslanet hún hafði byggt upp í gegnum árin.

Í umræðum um hvernig hægt sé að byggja upp og varðveita gott orðspor nefndi Erna nokkur atriði: að vera með skýr gildi, vita hvert maður stefnir, mæta á viðburði, vera sýnileg á LinkedIn og – ekki síst – hvetja aðra áfram.

Hún lagði sérstaka áherslu á eina reglu: Að tala ekki illa um aðra.


Arna hvatti konur sömuleiðis til að horfa út fyrir þröngan ramma eigin starfs. Að koma sér á framfæri geti vissulega kallað fram smá kjánahroll í byrjun en sýnileiki skapi tækifæri. Það geti til dæmis falist í því að sækja um að halda erindi á ráðstefnu eða taka að sér verkefni sem maður hefði áður talið vera fyrir „einhvern annan“.

„Orðsporið er gríðarlega mikilvægt. Orðsporið er algjör lykill og það sem kemur okkur áfram í þessu litla samfélagi.“

Eftir öll þau samtöl sem Erna hefur átt við konur í hlaðvarpinu sínu “Hún tengir” segir hún einn rauðan þráð koma aftur og aftur fram:



„Allar konurnar sem hafa komið í Hún tengir segja það sama: Við þurfum tengslanet.“


En öflugt tengslanet byggist ekki eingöngu á því hvað aðrir geta gert fyrir okkur. Það snýst líka um hvernig við mætum öðru fólki.


Erna ræddi meðal annars um mikilvægi þess að festast ekki í samanburði eða öfund þegar aðrar konur fá tækifæri. Í stað þess að velta fyrir sér
„af hverju er hún þarna?“ sé gagnlegra að styðja við árangur annarra og treysta því að eigin tækifæri komi.

Sama eigi við þegar við hittum fólk sem við teljum í fyrstu að við eigum lítið sameiginlegt með. Það geti borgað sig að mæta, taka samtalið og setja sig í nýjar aðstæður. Oft geti verðmæt tengsl skapast þar sem maður átti síst von á þeim.


Skilaboð Ernu og Örnu voru skýr: Byggðu upp tengsl áður en þú þarft á þeim að halda. Leitaðu að fólki sem getur kennt þér eitthvað. Segðu já við tækifærum. Taktu pláss og ekki gleyma að lyfta öðrum með þér.


„Við þurfum tengslanet“

Recent Posts

Eftir Alma UAK • 20. október 2026
Með því að stunda styrktarþjálfun ertu að fjárfesta í framtíðinni
Eftir Alma UAK • 17. september 2026
Opnunarviðburður haustannar, 9. september 2026
Veggspjald frá Fyrirtækjaheimsókn Sjóva með þremur portrettmyndum og upplýsingum um viðburðinn á kórallituðum bakgrunni.
7. maí 2026
Innblástur frá Sjóvá: Mannlegi þátturinn lykill að árangri
Fundarherbergi með fólki sem situr við hringborð og horfir á kynningarskjá
7. maí 2026
Nýja árstíðin er góð ástæða til að taka og halda ályktanir. Hvort sem það er að borða rétt eða þrífa bílskúrinn, hér eru nokkur ráð til að gera og halda ályktanir.