Sterkari saman – framtíðin er sterk!
Með því að stunda styrktarþjálfun
ertu að fjárfesta í framtíðinni
Þetta voru ein af lykilskilaboðum Arnhildar Önnu Árnadóttur og Hildar Karenar Jóhannsdóttur á viðburðinum
Sterkari saman. Þar komu félagskonur saman til að hreyfa sig, fræðast og sækja innblástur um mikilvægi styrktarþjálfunar, bæði fyrir líkamlega og andlega heilsu.
Viðburðurinn hófst í Afrek þar sem félagskonur fengu tækifæri til þess að taka á því undir leiðsögn þeirra Arnhildar og Hildar Karenar. Að æfingu lokinni færði hópurinn sig yfir í Valsheimilið þar sem þær stöllur héldu fróðlegt og hvetjandi erindi um styrktarþjálfun, heilsu og mikilvægi þess að byggja upp sterkan líkama til framtíðar.
Við þökkum frábæru styrktaraðilum viðburðarins kærlega fyrir samstarfið og
hvetjum allar til að kynna sér starfsemi og vöruframboð þeirra.
Afrek - Maikai - Hleðsla - Heilsa - Wodbúð - Icepharma

Arnhildur Anna Árnadóttir er ein fremsta kraftlyftingakona Íslands og hefur á ferli sínum sett ansi mörg íslandsmet. Arnhildur hefur stundað lyftingar frá árinu 2011 og starfar í dag sem styrktarþjálfari, auk þess að hafa stofnað ADDA, þar sem konur geta stundað markvissa styrktarþjálfun í gegnum fjarþjálfun.
Hildur Karen Jóhannsdóttir hefur víðtæka reynslu af íþróttum og þjálfun. Hún hefur meðal annars stundað handbolta, dans og CrossFit en sérhæfir sig í dag í þjálfun kvenna á meðgöngu og eftir fæðingu. Hún þjálfar meðal annars afreksmömmur hjá Afrek og rekur fyrirtækið Móðurkraftur, sem býður konum upp á fjarþjálfun á þessu mikilvæga skeiði lífsins.
Styrkur snýst um meira en útlitið
Í erindinu lögðu þær áherslu á að styrktarþjálfun snerist um mun meira en útlit eða tölur á lóðum. Hún væri leið til að efla sjálfstraust, bæta heilsu og undirbúa líkamann fyrir þær fjölbreyttu áskoranir sem lífið hefur upp á að bjóða.
„Lyftingar eru besta yngingarlyfið,“ sagði Arnhildur og lagði áherslu á mikilvægi þess að viðhalda styrk og vöðvamassa eftir því sem árin líða.
Þær ræddu jafnframt hversu valdeflandi það væri að finna eigin styrk aukast. Að þora að reyna á sig, lyfta þyngra og að mistök væru mikilvægur hluti af því að ná árangri.



Að þora að taka pláss og verða sterkari
Eitt af þeim skilaboðum sem stóðu upp úr var mikilvægi þess að konur þori að taka pláss í líkamsræktarsalnum, ögra sjálfum sér og vera stoltar af eigin styrk.
Arnhildur rifjaði upp upphaf kraftlyftingaferils síns og hvernig hún hefði áður skammast sín fyrir að verða rauð í framan við æfingar eða nota lyftingabelti. Í dag er hún hvað stoltust af því að hafa þorað að stíga út fyrir þægindarammann þegar hún var ung.
Þær hvöttu konur til að vera óhræddar við að prófa þyngri lóð og minna sig á að mistök væru eðlilegur hluti af framförum. Til þess að byggja upp styrk þyrfti að reyna á líkamann og auka álagið með markvissum hætti.
Þær minntu einnig á að árangur byggðist ekki eingöngu á æfingunum sjálfum. Næg næring, góður svefn og hvíld væru lykilþættir í uppbyggingu líkamans.




Styrktarþjálfun á öllum æviskeiðum
Hildur Karen fjallaði sérstaklega um mikilvægi styrktarþjálfunar á meðgöngu og eftir fæðingu. Hún benti á að ýmsar mýtur væru enn við lýði um hreyfingu barnshafandi kvenna, þrátt fyrir að rannsóknir sýndu fram á margvíslegan ávinning af viðeigandi hreyfingu á meðgöngu.
Hún lagði áherslu á að fæðing væri mikið líkamlegt afrek sem krefðist bæði styrks og úthalds. Markviss þjálfun gæti því verið mikilvægur undirbúningur fyrir fæðingu og stuðlað að betri líkamlegri líðan og endurheimt eftir hana.
Þær ræddu einnig mikilvægi styrktarþjálfunar þegar konur eldast. Vöðvamassi hefur tilhneigingu til að minnka með aldrinum og því sé mikilvægt að byggja upp og viðhalda styrk alla ævi. Styrktarþjálfun geti meðal annars stuðlað að sterkari beinum, betri líkamlegri getu og auknum lífsgæðum.
Skilaboðin voru skýr: Það er aldrei of snemmt eða of seint að byrja að fjárfesta í eigin styrk.
Framtíðin er sterk – ekki skinny
„Tölum frekar um afrek heldur en útlit,“ voru skilaboð þeirra til félagskvenna.
Undir lok erindisins beindu Arnhildur og Hildur Karen sjónum sínum að samfélagslegum staðalímyndum og þeim skilaboðum sem ungar stúlkur og konur fá um líkama sinn.
Þær bentu á að samfélagsmiðlar ýttu gjarnan undir einhæfar hugmyndir um útlit og líkamsvöxt, þar sem áherslan væri of oft á að vera grönn fremur en sterk og heilbrigð.
Þær lögðu áherslu á að kenna ungum stúlkum að meta líkama sinn út frá því sem hann getur gert, fremur en hvernig hann lítur út. Líkaminn sé verkfæri sem gerir okkur kleift að takast á við verkefni lífsins, upplifa nýja hluti og ná markmiðum okkar.
Viðburðurinn Sterkari saman var þannig ekki aðeins hvatning til að lyfta lóðum, heldur einnig áminning um mikilvægi þess að trúa á eigin getu, þora að ögra sjálfri sér og vera fyrirmyndir fyrir næstu kynslóð kvenna.


Því framtíðin er sterk – og saman erum við sterkari!
Ungar athafnakonur þakka Arnhildi Önnu og Hildi Karen kærlega fyrir fróðlegt, skemmtilegt og hvetjandi erindi, sem og öllum þeim félagskonum sem tóku þátt í viðburðinum.
Við þökkum styrktaraðilum viðburðarins einnig kærlega fyrir sitt framlag.
Maikai, Hleðsla, Heilsa, Wodbúð og Icepharma











