Hugrekki, seigla og krafturinn í að þora

Alma UAK • 17. september 2026

Share this article

Opnunarviðburður haustannar, 9. september 2026

Hugrekki, seigla og það að þora að fara sínar eigin leiðir voru í forgrunni á opnunarviðburði UAK þar sem Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Vijona Salome og Guðrún Karls Helgudóttir deildu persónulegri reynslu sinni og lærdómi úr lífi og starfi. Þrátt fyrir ólíkan bakgrunn og ólíkar vegferðir áttu sögur þeirra margt sameiginlegt – að standa með sjálfri sér, takast á við mótlæti og þora að taka næsta skref.

Áslaug Arna ræddi um lærdóminn af því að leiða ung og hvernig sannfæring, lífsreynsla, gagnrýni og mistök hafa mótað hana. Hún sagðist hafa verið heppin að finna ástríðu sína snemma en lagði áherslu á að ástríða detti ekki af himnum ofan. Hún verði til þegar við finnum hvar áhugi okkar liggur og ræktum hann.

Persónuleg reynsla hefur einnig mótað hennar vegferð. Að alast upp með fatlaðri systur kom henni snemma í þjónustuhlutverk og missir foreldris kenndi henni að nýta tímann og vera óhræddari við að taka áhættu. Hún hefur gjarnan beðið um „stærri skó“ en hún passaði í hverju sinni og lagði áherslu á að reynsla ungs fólks væri ekki síður dýrmæt en þeirra sem reyndari eru.
Mikilvægi góðs teymis var henni einnig ofarlega í huga. „Þú gerir ekkert einn,“ voru skýr skilaboð og ræddi hún meðal annars um mikilvægi þess að konur styðji hver aðra og leyfi ekki öðrum að stilla þeim upp gegn hvor annarri.

"Þú gerir ekkert ein/einn"

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Senior Director, AI Partnership at Fenris Creations

Áslaug ræddi einnig opinskátt um gagnrýni, mistök og ósigra. Með tímanum hefði hún lært hvað væri gagnlegt að taka til sín og hverju ætti að ýta frá sér. Hún benti jafnframt á að ráðleggingar fólks mótist oft af eigin þægindaramma þess – fólk ráðleggi öðrum út frá því sem það sjálft myndi þora að gera. Erfiðar ákvarðanir geti verið réttar ákvarðanir og mistök séu nauðsynlegur hluti þess að ná markmiðum sínum.

„Ég dett, stend upp og held áfram,“ voru kjarnaskilaboð Vijonu Salome, frumkvöðuls, áhrifavalds og einkaþjálfara. Hún deildi áhrifamikilli sögu sinni, allt frá erfiðri æsku og einelti yfir í frumkvöðlastarf og þann vettvang sem hún hefur skapað sér í dag.

Vijona flutti ung til Íslands og upplifði mikla óvissu á fyrstu árum sínum hér á landi. Í grunnskóla varð hún fyrir einelti vegna uppruna síns, tungumáls og útlits og með tímanum fór hún sjálf að trúa neikvæðu skilaboðunum sem hún fékk. Vendipunktur varð þegar hún skráði sig á Dale Carnegie-námskeið og þurfti að standa upp fyrir framan aðra og segja sögu sína. Þegar fólk hlustaði, áttaði hún sig á því að reynsla hennar og rödd hefðu gildi.

"Ég dett, stend upp og held áfram"

Síðar ákvað hún að keppa í fitness. Skömmu fyrir keppni féll hún niður tröppur og slasaðist en ákvað þrátt fyrir það að mæta til leiks og varð þrefaldur Íslandsmeistari. Atvikið varð táknrænt fyrir hennar vegferð: Hún datt, stóð upp og hélt áfram.
Vijona sagði jafnframt frá frumkvöðlastarfi sínu á Spáni og hvernig hún hefur eftir heimkomuna til Íslands byggt upp vettvang á samfélagsmiðlum. Athyglinni hefur einnig fylgt hörð gagnrýni en í stað þess að draga sig í hlé ákvað hún að standa með sjálfri sér. Skilaboðin voru skýr: Hindranir munu koma og því eigi ekki að bíða eftir „rétta augnablikinu“ til að láta vaða.

Að lokum deildi Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, reynslu sinni af því að feta eigin leið innan stofnunar þar sem sterkar hefðir og hugmyndir eru um hvernig leiðtogi eigi að vera. Hún sagði frá því hvernig fólk hefði hvatt hana til að íhuga biskupsembættið áður en hún sjálf leyfði sér að segja upphátt að hún væri tilbúin að taka það að sér.

Eftir kjörið áttaði Guðrún sig fljótt á því að margir hefðu skoðanir á því hvernig hún ætti að vera sem biskup. Hún lagði hins vegar áherslu á að hún hefði ekki verið kosin vegna þess að hún væri eins og einhver annar heldur vegna þess hver hún væri sjálf. 

Hún ræddi einnig um mikilvægi þess að byggja brýr milli fólks. Í samtölum um trú hefði hún tekið eftir því að svör fólks væru sjaldnast einfalt „já“ eða „nei“, heldur gjarnan „já, en“ eða „nei, en“. Í þessu „en“ væri hægt að finna sameiginleg gildi á borð við frið, ást og fyrirgefningu.

"Ef við myndum aldrei þora, þá myndum við aldrei gera neitt"

Þótt sögur Áslaugar, Vijonu og Guðrúnar séu ólíkar komu þær allar inn á sömu grundvallaratriðin: að treysta eigin rödd, þora að taka pláss og leyfa ekki væntingum annarra að ákveða hversu langt maður getur farið.



Viðburðurinn var bæði persónulegur og hvetjandi og minnti gesti á að hugrekki felst ekki í því að vera óhræddur, heldur að þora að taka næsta skref þrátt fyrir óvissuna – detta, standa aftur upp og halda áfram.

Recent Posts

Veggspjald frá Fyrirtækjaheimsókn Sjóva með þremur portrettmyndum og upplýsingum um viðburðinn á kórallituðum bakgrunni.
7. maí 2026
Innblástur frá Sjóvá: Mannlegi þátturinn lykill að árangri
Fundarherbergi með fólki sem situr við hringborð og horfir á kynningarskjá
7. maí 2026
Nýja árstíðin er góð ástæða til að taka og halda ályktanir. Hvort sem það er að borða rétt eða þrífa bílskúrinn, hér eru nokkur ráð til að gera og halda ályktanir.