
Þann 22. mars standa Ungar athafnakonur (UAK) fyrir sinni árlegri ráðstefnu sem fram fer í ráðstefnusal The Reykjavík Edition. Ráðstefna félagsins er nú haldin í ellefta sinn og ber yfirskriftina Innri áttavitinn: Leiðin liggur til allra átta.
Þemað í ár undirstrikar það að lífið er sjaldnast greið og bein leið - og sem betur fer! Við viljum hvetja gesti til að staldra við, hlusta á innsæið og skoða þau gildi sem móta stefnu þeirra í lífinu. Finnum styrkleikann í því að flétta saman mismunandi þekkingu og áhugamál til að móta okkar eigin veg. Við höfum fengið til liðs við okkur framúrskarandi og skemmtilega fyrirlesara úr ýmsum atvinnugreinum sem allar eiga það sameiginlegt að fylgja sínum innri áttavita.
Dagskráin er fjölbreytt þar sem við munum heyra reynslusögur kvenna úr fjölbreyttum geirum – allt frá orkumálageiranum, fjármálum og nýsköpun til lögfræði, leiklistar og uppeldis- og menntunarfræða. Þær munu meðal annars deila því hvernig þær sigruðust á hindrunum, fundu sína stefnu, og hvaða lærdóm þær hafa dregið af sinni vegferð.
Innifalið í miðaverði er gjafapoki, hádegismatur, kaffi og léttar veitingar að dagskrá lokinni.
Við hlökkum til að sjá ykkur 22. mars 2025 í Reykjavík Edition og gera okkur glaðan dag saman!
Við viljum benda á að margir starfsmenntasjóðir veita styrk fyrir allt að 90% af ráðstefnugjaldi. Kannaðu þinn rétt hjá þínu stéttarfélagi. Ef fyrirtæki greiðir reikning þá þurfa sömu upplýsingar að fylgja með umsókn og reikningurinn verður að vera á nafni og kennitala fyrirtækis og þá er sótt um styrk gegnum https://attin.is
Verð:
4.500 kr. fyrir félagskonur UAK
10.500 kr. fyrir ráðstefnumiða og félagsaðild
12.000 kr. stakur miði á ráðstefnu
Dagskrá
10:00
Ungar athafnakonur
Athena Neve Leex, ráðstefnustýra UAK, býður gesti velkomna fyrir hönd stjórnar UAK.
Athena Neve Leex
Ráðstefnustýra UAK

10:15
Opnunarávarp
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er utanríkisráðherra Íslands og tók við embættinu í desember 2024. Hún var menntamálaráðherra frá árunum 2003-2009 og sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra árið 2017. Þorgerður er formaður Viðreisnar og hefur verið alþingismaður Suðvesturkjördæmis frá árinu 2016. Hún var áður alþingismaður Reyknesinga 1999-2003 og alþingismaður Suðvesturkjördæmis 2003-2013.
Þorgerður er með lögfræðipróf frá Háskóla Íslands og hefur setið í fjölmörgum nefndum og stjórnum á sínum ferli.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
Utanríkisráðherra Íslands

10:40
Ég skal vera Grýla
Margrét Pála Ólafsdóttir er leikskólakennari að mennt en hún útskrifaðist frá Fósturskóla Íslands árið 1981, lauk framhaldsnámi í stjórnun frá sama skóla árið 1996 og árið 2000 lauk hún meistaragráðu í uppeldis- og menntafræði frá Kennaraháskóla Íslands. Hún stofnaði Hjallastefnuna árið 2000, þar sem unnið er að jafnrétti kynjanna með kynjaskiptu skólastarfi. Margrét Pála hlaut Jafnréttisverðlaun Jafnréttisráðs árið 1997 fyrir Hjallastefnuna og hefur síðan hlotið fjölda viðurkenninga fyrir frumkvöðlastarf sitt í skólamálum. Margrét Pála var einn stofnanda Íslensk- lesbíska á níunda áratugnum og formaður Samtakanna ’78 frá 1994 – 1997 og eftir stutt hlé, aftur frá 1997 – 1999.
Margrét Pála Ólafsdóttir
Stofnandi Hjallastefnunnar

11:10
Ekkert breytist nema þú breytir því
Selma Svavarsdóttir er forstöðumaður umbóta og öryggis á skrifstofu forstjóra hjá Landsvirkjun. Þar leiðir hún teymi sem vinnur að öryggismálum, áhættustýringu, umbótaverkefnum, þróun ferla og gagnastýringu. Hún hefur starfað í orkugeiranum frá 2013, m.a. sem forstöðumaður á mannauðssviði, þar sem hún leiddi jafnréttisvegferð fyrirtækisins og vann að eflingu fyrirtækjamenningar og innri samskipta. Áður starfaði Selma í rúman áratug í fjármálageiranum, þar af lengst í markaðsdeild Arion banka. Hún er viðskiptafræðingur með MBA frá Háskólanum í Reykjavík og er formaður Kvenna í Orkumálum (KÍO), auk þess að reka Heimilisfélagið.
Selma Svavarsdóttir
Forstöðumaður umbóta og öryggis hjá Landsvirkjun

11:35
Innovation: a journey of many paths (EN)
Sigríður, Michelle and Ingunn will walk us through different aspects of innovation. They will discuss what led them to innovation, challenges and opportunities, and offer practical advice on funding and how to get started!
The panel discussion will be in english and moderated by Snæfríður Jónsdóttir.
Sigríður Birna Matthíasdóttir
Software Engineer hjá Overcast

Michelle Spinei
International Relations Manager at Iceland Innovation Week

Ingunn Eiríksdóttir
Fyrirsæta, frumkvöðull og fjárfestir

Umræðum stýrt af:
Snæfríður Jónsdóttir er vörustjóri hjá Nova, þar sem hún leiðir framþróun og vöxt Nova appsins. Áður hefur Snæfríður starfað sem markaðsstjóri hjá Öldu hugbúnaðarfyrirtæki og viðskiptastjóri hjá auglýsingastofunni Tvist. Hún sat í stjórn Ungra athafnakvenna, fyrst sem viðskiptastjóri og síðar sem formaður félagsins, árin 2018-2020. Snæfríður er með B.Sc. í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
Snæfríður Jónsdóttir
Vörustjóri hjá Nova

12:15
Hádegishlé
Hádegismatur innifalinn í ráðstefnumiða.
13:15
Taktu skrefið fyrir framtíðar þig
Að baki Fortuna Invest standa Aníta Rut, Kristín Hildur og Rósa. Þær halda úti samnefndum Instagram miðli sem telur yfir 21 þúsund fylgjendur og markmið þeirra er að auka fjármálalæsi og gera fjárfestingar aðgengilegar fyrir alla. Þær gáfu út metsölubókina Fjárfestingar sem seldist upp og hefur verið endurprentuð. Auk þess hafa þær gefið út tvær hlaðvarpsþáttaraðir um fjármál og fjárfestingar. Nýlega var fyrsta fréttabréfið sent út, þar sem áhersla er lögð á það áhugaverðasta í fjármálaheiminum hér heima og erlendis.
Fortuna Invest

13:50
Óttalaus viðleitni: Að móta sína eigin leið áfram
Claudia Ashanie Wilson útskrifaðist með meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2014 og er fyrsti einstaklingurinn af erlendum uppruna, fædd og uppalin utan Evrópu, til að öðlast lögmannsréttindi á Íslandi.
Hún er eigandi lögmannsstofunnar Claudia & Partners Legal Services, Landsdómari, formaður fagráðs Jafnréttissjóðs Íslands og stundakennari við Jafnréttisskóla GRÓ (GRÓ-GEST) og viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, þar sem hún kennir námskeið um fjölbreytileika og inngildingu. Auk starfa sinna sem lögmaður hefur Claudia verið mjög virk í félagsstörfum og hefur verið varaformaður Íslandsdeildar Amnesty International og Samtaka kvenna af erlendum uppruna á Íslandi.
Claudia Ashanie Wilson
Lögmaður og eigandi lögmannsstofunnar Claudia & Partners Legal

14:15
Kaffihlé
14:35
Smá léttmeti
Snjólaug er handritshöfundur og uppistandari. Hún skrifar fyrir kvikmyndir og sjónvarp - og kemur fram sem uppistandari og veislustjóri á skemmtunum og í veislum
Snjólaug fer með uppistand á íslensku, ensku og frönsku og hefur skemmt víðs vegar um Evrópu
Snjólaug Lúðvíksdóttir
Uppistandari og handritshöfundur

14:55
Það kemur að því að konur bjarga heiminum, með hjálp karla
Þær Nína Dögg Filippusdóttir og Rakel Garðarsdóttir spjalla saman um gerð þáttanna Vigdís, sem eru byggðir á hinni mögnuðu ævi Vigdísar Finnbogadóttur. Við fáum að skyggnast bakvið tjöldin, kynnast ferlinu á bakvið þættina og hvað það var sem dróg þær Rakel og Nínu að þessu áhrifamikla verkefni.
Nína Dögg Filippusdóttir útskrifaðist úr leiklistardeild LHÍ 2001 og hefur leikið fjölda hlutverka á sviði, í kvikmyndum og sjónvarpi. Hún er einnig handritshöfundur og kvikmyndaframleiðandi. Hún er meðal stofnenda Vesturports og lék m.a. í Rómeó og Júlíu, Hamskiptunum og Faust hérlendis sem erlendis. Í Þjóðleikhúsinu hefur hún m.a. farið með burðarhlutverk í Ex, Jólaboðinu, Óþelló, Tímaþjófnum, Sporvagninum Girnd og Fjalla-Eyvindi, og í Borgarleikhúsinu í Fólk, staðir og hlutir og Fjölskyldunni. Hún var einn framleiðenda, höfunda og leikara í sjónvarpsþáttaröðunum Verbúðinni og Föngum og fer með titilhlutverkið í sjónvarpsþáttaröðinni Vigdís. Hún hefur hlotið fjölda tilnefninga til Grímunnar og Eddunnar og hlaut Grímuna fyrir Fólk, staðir og hlutir og EX og Edduna fyrir Brim og Hjartastein, Verbúðina og Villibráð.
Nína Dögg Filippusdóttir
Leikkona, handritshöfundur og framleiðandi

Rakel Garðarsdóttir
Framleiðandi hjá Vesturport, stofnandi & framkvæmdastýra samtakanna Vakandi

15:35
Að fylgja innsæinu með ákvörðunum
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir er forstjóri Varðar. Hún tók við starfinu í apríl árið 2023 eftir að hafa starfað í 12 ár hjá Marel, síðast sem framkvæmdastjóri fiskiðnaðar og framkvæmdastjóri Marel á Íslandi, en leiddi áður vöruþróunarteymi Marel á Íslandi og í Bretland. Fyrir það starfaði hún hjá fjárfestingafélaginu Eyri Invest.
Guðbjörg er með meistaragráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.
Árið 2020 fékk Guðbjörg hvatningaverðlaun FKA fyrir vel unnin störf í þágu atvinnureksturs kvenna eða þeim sem hafa verið konum í atvinnulífinu sérstök hvatning eða fyrirmynd.
Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir
Forstjóri Varðar

