Aðalfundur UAK

Aðalfundur UAK 2026

In by Athena Neve Leex

Viðburður fer fram: 26/05/2026
Klukkan: 5:00 f.h. - 7:30 f.h.
Hvar: KPMG, Borgartún 27


Nú fer starfsári UAK að ljúka og því boðar stjórn til aðalfundar 26.maí nk. Fundurinn fer fram í húsakynnum KPMG, Borgartúni 27. Fundurinn hefst kl. 17:30 en húsið opnar kl. 17:00.

Fjórar stjórnarkonur munu ljúka stjórnarsetu sinni á aðalfundinum og óskum við því eftir framboðum í stjórn UAK 2026-2028. Einnig verða tveir varamenn kjörnir til eins árs. Allar þær félagskonur, 18 ára og eldri, sem skráðar hafa verið í félagið og greitt félagsgjöld a.m.k. 2 vikum fyrir aðalfund hafa rétt til að bjóða sig fram til stjórnar og hafa atkvæðisrétt.

Í framboðum til stjórnar skal sérstaklega kveða á um ef frambjóðandi býður sig einnig fram sem formaður félagsins. Formaður stjórnar þarf að hafa hlotið kosningu í stjórn félagsins til að verða kjörgeng í kjör formanns. Framboð þurfa að berast eigi síðar en kl. 23:59 laugardaginn 23. maí n.k. á umsokn@uak.is. Kosið verður í önnur embætti innan stjórnar á fyrsta stjórnarfundi nýs starfsárs. 

Í framboðinu þarf eftirfarandi að koma fram:

  • Fullt nafn
  • Kennitala
  • Titill (starf/nám/annað)
  • Framboðstexti sem verður birtur á heimasíðu UAK að hámarki 150 orð
  • Mynd af frambjóðanda
  • Tekið skal fram ef frambjóðandi býður sig fram sem formann félagsins

Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:

  1. Kosning fundarstjóra og ritara
  2. Skýrsla stjórnar um starfsemi og rekstur á liðnu starfsári
  3. Ársreikningur kynntur fyrir liðið starfsár og borinn upp til samþykktar
  4. Lagabreytingar
  5. Kosning stjórnar
  6. Kosning formanns stjórnar
  7. Ákvörðun félagsgjalda
  8. Önnur mál

Á meðan á talningu atkvæða stendur munum við fá að heyra frá Evu Kristjánsdóttur sem leiðir þjónustu KPMG á sviði innri endurskoðunar og hlítingarráðgjöf.

Við minnum einnig á að ef þið komist ekki á aðalfundinn getið þið veitt umboðsmanni skriflegt umboð til að sækja aðalfund og fara með atkvæðisrétt fyrir ykkar hönd. Athugið að umboðsmaður þarf að vera skráður í félagið og hafa greitt félagsgjöld a.m.k 2 vikum fyrir aðalfund.

Allar félagskonur geta lagt fram tillögur til lagabreytinga og skal skilað eigi síðar en kl. 23:59 laugardaginn 23. maí n.k. á netfangið uak@uak.is.

Skráning á aðalfundinn er hafin. Það verður frábært að koma saman og fagna starfsárinu sem er að líða.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Eva Kristjánsdóttir

Eva leiðir þjónustu félagsins á sviði innri endurskoðunar og hlítingarráðgjöf ásamt því að koma að áhætturáðgjöf. Hún hefur starfað á ráðgjafarsviði KPMG síðan 2015 og unnið að margvíslegum verkefnum tengdum innri- og ytri endurskoðun, upplýsingaöryggi, úttektum á hlítingu við lög og reglur ásamt ráðgjöf. Áður starfaði Eva á viðskiptaskrifstofu sendiráðs Bretlands á Íslandi við viðskipta- og fjárfestingaráðgjöf til breskra fyrirtækja. Á árunum 2008-2012 starfaði Eva hjá utanríkisráðuneytinu, lengst af á viðskiptaskrifstofu ráðuneytisins.

Skráning

Skráning er lokuð.