Viðburður fer fram: 13/05/2026
Klukkan: 8:00 e.h. - 10:00 e.h.
Hvar: Samtök Atvinnulífsins, Borgartún 35
UAK stendur fyrir viðburðinum Mistök opna aðrar dyr þann 13.maí í sal Samtaka atvinnulífsins Borgartúni 35. Á viðburðinum beinum við sjónum að persónulegri vegferð, reynslu og þeim lærdómi sem mótar okkur – sérstaklega þegar hlutirnir fara ekki eins og áætlað var. Við ætlum að skapa rými fyrir einlægar frásagnir þar sem mistök eru nýtt sem drifkraftur fyrir vöxt og ný tækifæri.
Markmið kvöldsins verður að varpa ljósi á sögur frábærra athafnakvenna sem eru með ólíka reynslu úr atvinnulífinu. Við skoðum hvernig áskoranir og mistök geta opnað nýjar dyr og leitt okkur jafnvel á óvæntar slóðir.
Húsið opnar kl. 19:30 og hefst viðburðurinn kl. 20:00. Við hvetjum ykkur til að mæta, hlusta, læra og fá innblástur út frá reynslusögum.
Yesmine Olsson
Yesmine er frumkvöðull sem hefur markvisst skapað sinn eigin vettvang og tækifæri. Hún framleiddi og fjármagnaði sinn eigin sjónvarpsþátt og gaf út matreiðslubækur sem náðu metsölu, auk þess sem hún hlaut viðurkenningu sem verðlaunaður bókahöfundur.
Ástríða hennar fyrir mat og sköpun leiddi hana áfram í að þróa námskeið sem opnuðu henni dyr að stærstu eldhúsum landsins, þar sem hún starfaði með fremstu fagkokkum.
Í kjölfarið stofnaði hún, ásamt eiginmanni sínum, veitingastaðinn Funky Bhangra. Á aðeins þremur árum byggðu þau upp þrjá staði. Sú vegferð hefur verið bæði krefjandi og afar gefandi – sannkallað ferðalag þar sem árangur og áskoranir fara hönd í hönd.
Í grunninn er Yesmine dansari, kóreógrafer og einkaþjálfari, með diplóma í næringarráðgjöf. Allir þessir þættir hafa haft mikil áhrif á hvernig hún nálgast hlutverk sitt sem veitingakona. Bæði hún og eiginmaður hennar koma úr tónlistar- og skemmtanabransanum, sem hefur einnig mótað hvernig þau byggja upp og kynna veitingastaðinn sinn.
Lína Birgitta Sigurðardóttir
Lína Birgitta er stofnandi og eigandi lífsstíls og æfingafatamerkisins Define the Line. Hún er viðskiptafræðingur að mennt og starfar aukalega sem áhrifavaldur og hlaðvarpsstjórnandi hlaðvarpsins Spjallið.
Með yfir 13 ára reynslu í fyrirtækjarekstri og víðtæka reynslu á samfélagsmiðlum hefur hún byggt upp sterkt vörumerki og skapað vettvang þar sem hún tengir saman tísku, heilsu og lífsstíl á aðgengilegan hátt.
Skráning er hafin, hlökkum til að sjá ykkur!
Skráning
Skráning er lokuð.



