Viðburður fer fram: 18/02/2026
Klukkan: 5:00 e.h. - 7:00 e.h.
Hvar: Samtök Atvinnulífsins, Borgartún 35
UAK stendur fyrir viðburðinum Kvenheilsa í forgang þann 18. febrúar í veislusal Vinnustofu Kjarval sem ber heitið Fantasía. Þar ætlum við að beina sjónum að því sem skiptir raunverulega máli, andleg og líkamleg heilsa kvenna. Húsið opnar kl 17:00 og viðburður hefst kl 17:30 Markmið viðburðarins er að vekja athygli á fjölbreyttum þáttum sem tengjast kvenheilsu.
Dagskrá viðburðarins samanstendur af erindum frá konum sem hafa víðtæka reynslu af heilsu kvenna. Viðburðurinn fer fram í rólegu og notalegu andrúmslofti, þar sem við viljum skapa öruggt rými fyrir samtal, tengingu og innblástur. Kvöldið verður tileinkað því að dýpka skilning á eigin líkama, huga og vellíðan og minna okkur á að setja okkur sjálfar í forgang.
Við hvetjum ykkur til að mæta, hlusta, læra og fá innblástur til að setja kvenheilsu í forgang.
Laufey Ólafsdóttir
Stofnandi og eigandi vellíðunarforritsins og samfélagsins ELLO
Laufey hefur eytt 4 árum í stofnun ELLO með allskonar hraðahindrunum en aldrei gefist upp því trúin að konum sem líður vel í eigin skinni og hafi stuðning muni breyta leiknum.
Helga Theodors
Stofnandi Núna Collective Wellness Studio
Helga Theodors er stofnandi Núna Collective Wellness Studio og hefur kennt barre og hreyfingu í yfir fimmtán ár, með áherslu á functional fitness – eða hagnýta líkamsrækt. Sú nálgun snýst um að byggja styrk og líkamsvitund sem nýtist í daglegu lífi, þannig að við hreyfum okkur betur, mýkri og með meiri meðvitund.
Í gegnum árin hefur Helga þjálfað fjölda kennara og leiðbeint ótal nemendum, alltaf með áherslu á jafnvægi milli styrks og mýktar í hreyfingu.
Hún er einnig stofnandi Barre Movement kennaranámsins, þar sem barre er nýtt sem leið til að tengjast líkamanum á dýpri hátt. Helga er þekkt fyrir að skapa rými þar sem nákvæmni og nærvera mætast – þar sem fólk getur tengst líkamanum sínum og öðlast meiri skilning á því hvernig hann virkar.
Rakel Guðmundsdóttir og Sirrý Svöludóttir
Sirrý Svöludóttir, framkvæmdastjóri Venju, hefur starfað lengi í heilsu- og bætiefnageiranum og leiddi meðal annars uppbyggingu vörumerkisins NOW Foods hjá Yggdrasil. Með áralanga reynslu í bætiefnageiranum tók hún eftir því hversu flókið og óaðgengilegt bætiefnaumhverfið er fyrir konur, þar sem engin skýr leiðsögn er til staðar þrátt fyrir breytilegar þarfir yfir lífskeið.
Rakel Guðmundsdóttir er rekstrarverkfræðingur með sterkan bakgrunn í rekstri og fjármálum. Hún starfaði sem rekstrarstjóri Gló og vinnur nú hjá Alfa framtaksjóði. Með reynslu af því að byggja upp fyrirtæki og innleiða sjálfbæran rekstur hefur hún lykilhlutverk í því að móta innviði og stefnu Venju.
Þótt þær hafi lengi vitað hvor af annarri í gegnum vinnu og viðburði, kynntust þær í raun á óformlegu teboði hjá sameiginlegum vini. Þar opnaðist samtal sem þróaðist fljótt í sameiginlega sýn: að konur væru að rata um frumskóg bætiefna án raunverulegrar leiðsagnar, með vörur sem voru í grunninn hannaðar fyrir karlmenn.
Úr varð Venja – byggð á þeirri hugmynd að konur eigi ekki að þurfa að giska á hvað þær þurfa, heldur fá skýrar, sérsniðnar lausnir sem taka mið af hormónasveiflum, lífskeiðum og breytilegum næringarþörfum. Þær hófu samstarf með því að tala við lækna, hjúkrunarfræðinga og næringarfræðinga og þróuðu bætiefnalínu frá grunni sem nú er boðin í 30 daga áskrift fyrir konur á öllum aldri.
Skráning er hafin, hlökkum til að sjá ykkur!
Skráning
Skráning er lokuð.




