Viðburður fer fram: 05/03/2026
Klukkan: 7:30 e.h. - 9:30 e.h.
Hvar: Sjávarklasinn, Grandagarði 16
Kæru félagskonur,
Þá er komið að öðru tengslakvöldi starfsárs UAK og nú í frábæru samstarfi með Iceland Innovation Week. Tengslakvöldið er tilteinkað ráðstefnu UAK sem fer fram laugardaginn 14.mars og munum við kynna dagskrána fyrir félagskonum.
Viðburðurinn er styrktur af Landsvirkjun. Tengslakvöldið fer fram í Sjávarklasanum við Grandagarð 16, 101 Reykjavík. Húsið opnar kl. 19:00 og viðburðurinn hefst stundvíslega kl. 19:30. Við hvetjum ykkur til þess að fara út að borða á Granda Mathöll og munum útvega afsláttarkóða þegar nær dregur að tengslakvöldinu.
Markmiðið með viðburðinum er að eiga saman skemmtilega kvöldstund þar sem félagskonum gefst tækifæri til þess að kynnast betur og skemmta sér saman.
Dagskrá viðburðarins hefst á góðu erindi frá þeim Eddu Konráðsdóttur og Melkorku Sigríði Magnúsdóttur um Iceland Innovation Week og starfsemi þeirra. Þær Edda & Melkorka eru spenntar fyrir að taka á móti okkur og veita okkur innsýn í starf og uppbyggingu fyrirtækisins. Hvernig stofnuðu þær fyrirtækið, hvar liggja tækifærin og áskoranirnar í nýsköpunarheiminum, hvað hafa þær lært af vegferðinni og hvernig geta félagskonur UAK tekið þátt á Nýsköpunarvikunni? Við ætlum að komast að því saman.
Eftir erindið tekur við skemmtileg tengslamyndun meðal félagskvenna sem verður leidd af stjórnarkonum UAK.
Drykkir og sætir bitar verða í boði á viðburðinum. Takmörkuð pláss í boði og því mikilvægt að skrá sig sem fyrst.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Iceland Innovation Week
Edda og Melkorka eru stofnendur og eigendur nýsköpunarhátíðarinnar Iceland Innovation Week og viðburðastúdíósins Milk & Kleina. Þær hafa verið í rekstri saman síðustu 6 árin og á þeim tíma byggt upp tvö farsæl fyrirtæki.
Iceland Innovation Week er árleg hátíð nýsköpunar, tækni og frumkvöðlastarfs sem er orðin ómissandi viðburður fyrir alla sem vilja fylgjast með framþróun íslensks atvinnulífs og tengjast lykilfólki í geiranum. Í ár verður hátíðin haldin dagana 27. – 30. maí með fjölda viðburða, fyrirlestra, tengslamyndunarviðburða og vinnustofa er þetta kjörið tækifæri fyrir alla áhugasama um nýsköpun, tækni og framtíð viðskiptalífsins til að kynnast nýjustu straumum og stefnum.
Edda Konráðsdóttir hefur sl. 10 ár starfað innan frumkvöða- og nýsköpunarheimsins. Áður starfaði hún hjá KLAK – Icelandic Startups, fjárfestingarfélaginu Foobar, loftslagsfyrirtækinu Transition Labs ásamt því að hafa unnið við viðskiptaþróun sem ráðgjafi hjá hinum ýmsu sprotafyrirtækjum. Hún hefur víðtæka reynslu innan nýsköpunarsamfélagsins og víðar. Þá hefur hún kennt frumkvöðlanám á háskólastigi, séð um gerð og framkvæmd vinnustofa, hraðla og jafnframt stýrt sendiferðum fyrir frumkvöðla á helstu sprotaráðstefnur heims.
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir hefur starfað víða á sviði tækni, lista og nýsköpunar, bæði sem ráðgjafi og stjórnandi. Hún hefur kennt nýsköpunarfræði við Háskóla Íslands, starfað með sprotafyrirtækjum og unnið að því að styðja við vöxt og framþróun frumkvöðla á Íslandi í gegnum margvísleg verkefni. Melkorka er einn af stofnendum og listrænn stjórnandi Iceland Innovation Week. Þar hefur hún unnið að samtali nýsköpunar og sviðslista með verkinu Ok, bye þar sem erindi og umræður frá frumkvöðlum tvinnast saman við listrænar uppákomur, tónlist og sjónræna upplifun. Melkorka er með háskólagráður í nýsköpunarfræðum, verkefnastjórnun og samtímadansi og býr til tónlist undir listamannsnafninu Milkywhale.
Tengslamyndun – Alma Stefánsdóttir, Halla Karen Johnson og Katrín Birna Kristensen stjórnarkonur stýra tengslamyndun
Skráning
Skráning er lokuð.


