Opnunarviðburður haust 2026

In by Ingveldur Gröndal

Viðburður fer fram: 09/09/2026
Klukkan: 7:00 e.h. - 9:30 e.h.
Hvar: ,


UAK býður til opnunarviðburðar haustannar 2026 í salnum í Grósku miðvikudagskvöldið 9.september. Húsið opnar kl. 19:00 og hefst dagskrá kl. 19.30. Viðburðinum lýkur um kl. 21.30.
Við setjum fókusinn á hugrekki, sjálfstraust og það að þora að taka skrefið, jafnvel þegar efinn gerir vart við sig.
Við fáum til okkar þrjár öflugar konur sem hafa hver á sinn hátt farið ótroðnar slóðir, tekið stórar ákvarðanir og þorað að standa með sjálfri sér. Þær deila reynslu sinni, lærdómi og því hvað hjálpar okkur að halda áfram þrátt fyrir efann.
Nýskráning opnar á opnunarviðburði ásamt nýrri heimasíðu en hægt er að skrá sig á tölvupóstlista til að fá tilkynningu þegar nýskráning opnar 9.september í félagið: https://docs.google.com/forms/d/1VwdnAsHXVWjA2cyn5iRUoGm0x2I1CPYUTiVFuCl7xAc/edit

Opnunarviðburður starfsársins ber yfirskriftina Þorum þrátt fyrir efann og miðar að því að efla félagskonur og veita ykkur innblástur frá mögnuðum kanónum með breiðan bakgrunn.

Húsið opnar kl. 19:30 og hefst dagskrá stundvíslega kl. 20.00. Viðburðinum lýkur um kl. 21.30. Viðburðurinn er öllum opinn, ekki þarf að vera félagskona, og aðgangur er ókeypis. Við hvetjum þig til þess að fjölmenna á viðburðinn með konunum í þínu lífi – vinkona, amma, móðir, sjúpmóðir, tengdamóðir, frænka, samstarfskona eða jafnvel nágrannakonu. Við hvetjum sérstaklega þær sem þekkja lítið til félagsins og sjá fram á að mæta einar, að taka skrefið út fyrir þægindarammann, mæta og kynnast félaginu og nýjum félagskonum.

Húsið opnar kl. 19:00 og hefst dagskrá stundvíslega kl. 19:30.

Dagskrá kvöldsins:

  • Kynning á nýju starfsári UAK og dagskrá
    Embla Líf Hallsdóttir, formaður UAK
  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, Framkvæmdarstjóri gervigreindarverkefnisins Fenris.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir er framkvæmdastjóri gervigreindarverkefnis Fenris. Hún er 35 ára og var þingmaður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í tíu ár, en hún var kjörin á þing 25 ára. Áslaug gegndi embætti dómsmálaráðherra og háskóla- iðnaðar og nýsköpunarráðherra frá 2019 til 2024 og er yngsta konan til að gegna embætti ráðherra. Áslaug Arna útskrifaðist með MPA gráðu frá Columbia háskóla í New York á árinu og með BA og MÁ gráðu í lögfræði eða Háskóla Íslands 2017.

 

  • Vijona Salome, einkaþjálfari og frumkvöðull.

Vijona Salome er einkaþjálfari og frumkvöðull með mikinn áhuga á heilsu, hreyfingu og næringu.

Undanfarin ár hefur hún byggt upp sinn eigin vettvang á samfélagsmiðlum þar sem hún deilir fræðslu, hennar eigin vegferð og hlutum sem hún hefur brennandi áhuga á.

Hún hefur alltaf þorað að fara mínar eigin leiðir og standa með því sem hún trúir á, jafnvel þegar það fær gagnrýni. Sú vegferð hefur kennt heenni ótrúlega mikið um mótlæti, sjálfstraust og mikilvægi þess að láta skoðanir annarra ekki stoppa sig.

Í dag vil hún nota sinn vettvang til að hafa jákvæð áhrif, hvetja aðra áfram og sýna að það er í lagi að fara sínar eigin leiðir.

  • Guðrún Karls Helgudóttir, Biskup Íslands.
Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, lauk Cand.theol.-prófi frá Háskóla Íslands árið 2000 og hélt þá til Svíþjóðar þar sem hún stundaði guðfræðinám og starfsþjálfun. Hún var vígð til prests í sænsku kirkjunni árið 2004 og þjónaði í tveimur söfnuðum í Gautaborg í rúm fjögur ár.
Árið 2008 hóf hún prestsþjónustu við Grafarvogskirkju og varð sóknarprestur þar árið 2016. Hún kenndi jafnframt prédikunarfræði við Guðfræðideild Háskóla Íslands og lauk Doctor of Ministry-gráðu í prédikunarfræðum frá The Lutheran School of Theology at Chicago árið 2016.
Guðrún hefur gegnt fjölmörgum trúnaðar- og forystustörfum innan Þjóðkirkjunnar, meðal annars í stjórn Prestafélags Íslands, sem varaformaður félagsins, formaður Æskulýðssambands Þjóðkirkjunnar og formaður Allsherjarnefndar kirkjuþings. Hún hefur einnig setið í fjölda nefnda og starfshópa um stefnumótun og þróun kirkjunnar.
Hún hefur sinnt ritstörfum, fræðslu og sálgæslu, meðal annars með gerð fermingarfræðsluefnis, leiðslu sorgar- og skilnaðarhópa og skrifum um trú, áföll og samfélagsmál. Árið 2020 dvaldi hún í Brisbane í Ástralíu í námsleyfi og síðar sama ár kom út hugleiðingabók hennar, Í augnhæð – hversdagshugleiðingar.
Guðrún hefur lagt áherslu á mannréttindi, jafnrétti og opna kirkju fyrir allt fólk. Hún lagði meðal annars fram tillögu á kirkjuþingi árið 2016, ásamt sr. Vigfúsi Bjarna Albertssyni, sem var samþykkt og tryggði að samkynhneigðum pörum yrði ekki neitað um hjónavígslu í Þjóðkirkjunni.
Í trú sinni leggur Guðrún áherslu á lifandi Guð, mátt bænarinnar og kærleika sem grundvöll kristinnar trúar. Hún lítur á það sem hlutverk sitt að boða Guð sem elskar allar manneskjur jafnt og kirkjuna sem griðastað trúar, vonar og kærleika.
Guðrún er gift Einari Sveinbjörnssyni, prófessor í eðlisfræði og eiga þau tvö börn og tvö barnabörn.

Léttar veitingar og tengslamyndun fyrir og eftir viðburð.

Aðgangur er ókeypis og hleypt inn á meðan húsrúm leyfir, gestum er frjálst að koma og fara á meðan viðburði stendur þegar þeim hentar. Bílastæði eru gjaldskyld fyrir utan Grósku.

Við hlökkum til að sjá ykkur, vonandi sem flest!