Frá hugmynd að hátíð – saga Iceland Innovation Week sögð á tengslakvöldi UAK

In Opnunaviðburður UAK haustið 2025 by Melkorka Mist Gunnarsdóttir

Miðvikudaginn 5. mars héldu Ungar athafnakonur vel sótt tengslakvöld á Sjávarklasanum í samstarfi við Iceland Innovation Week. Markmið kvöldsins var að efla tengsl milli félagskvenna og veita innsýn í stærstu hátíð nýsköpunarsamfélagsins á Íslandi.

Viðburðurinn var jafnframt svokallað „happy hour“ fyrir komandi ráðstefnu UAK, sem fer fram 14. mars, þar sem félagskonum gafst tækifæri til að kynnast dagskránni betur og hittast í aðdraganda ráðstefnunnar.

Fyrirlesarar kvöldsins voru frumkvöðlarnir Edda Konráðsdóttir og Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, stofnendur Iceland Innovation Week og viðburðastúdíósins Milk & Kleina. Þær sögðu frá upphafi hátíðarinnar, hvernig hugmyndin kviknaði þegar þær störfuðu saman hjá KLAK – Icelandic Startups og urðu varar við skort á alþjóðlegum nýsköpunarviðburðum á Íslandi.

Þær ákváðu því að búa til vettvang þar sem íslensk sprotafyrirtæki gætu tengst fjárfestum og fagfólki úr nýsköpunarheiminum. Í dag hefur hátíðin þróast í stóran árlegan viðburð sem laðar til landsins frumkvöðla, fjárfesta og sérfræðinga víðs vegar að. Í ár er hátíðin haldin dagana 27. – 30. maí og má nálgast dagskrá og miðasölu á heimasíðu hátíðarinnar.

Í erindinu ræddu þær um mikilvægi þess að þora að prófa hugmyndir, læra af mistökum og taka pláss með eigin verkefnum. Umræður sköpuðust einnig um mikilvægi félagstarfa og sjálfboðaliðastarfs. Báðar sögðu þær frá því hvernig þátttaka í slíkum verkefnum hefði opnað ný tækifæri í þeirra eigin ferli, auk þess að veita víðari sýn á samfélagið og styrkja tengslanet.

„Tengslanetið er ein stærsta auðlindin sem við eigum,“ sögðu þær og bentu á að mörg tækifæri skapist einmitt í gegnum samtöl og tengsl sem myndast á viðburðum. Þær hvöttu félagskonur UAK til að nýta sér kraftinn sem felst í öflugu samfélagi kvenna sem styðja hver aðra og samgleðjast árangri annarra.

Lifandi tengslamyndun

Að erindi loknu tók við lífleg tengslamyndun þar sem félagskonur fengu tækifæri til að kynnast betur og ræða saman. Tengslamynduninni stýrðu stjórnarkonur UAK, þær Alma Stefánsdóttir, Halla Karen Johnson og Katrín Birna Kristensen, sem leiddu skemmtileg samtöl og hvöttu til nýrra tengsla.

Kvöldið endaði þannig í anda markmiðs UAK, að skapa vettvang þar sem ungar konur í atvinnulífinu geta lært hver af annarri, byggt upp tengslanet sitt og stutt hvor aðra í metnaðarfullum verkefnum framtíðarinnar.

Stjórn UAK vill koma á framfæri innilegu þakklæti til allra félagskvenna sem mættu og tóku þátt í kvöldinu, sem og Eddu og Melkorku fyrir frábært erindi og fræðandi samtal um nýsköpun, tengsl og frumkvöðlastarf. Jafnframt þakkar UAK Landsvirkjun kærlega fyrir að styrkja viðburðinn og styðja við starf félagsins.