Innblástur frá Sjóvá: Mannlegi þátturinn lykill að árangri
Félagskonum UAK bauðst að fara í fyrirtækjaheimsókn til elsta og reyndasta tryggingafélags landsis, Sjóvá. Fulltrúar úr stjórnendateymi þeirra veittu innsýn í rekstur, starfsanda og vegferð stærsta tryggingafélags landsins.
Þær Lára Hrafnsdóttir, forstöðumaður markaðsmála, Elín Þórunn Eiríksdóttir, framkvæmdastjóri tjónaþjónustu og Sigríður Vala Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni, sögðu frá sínum starfsferli og því hvernig fjölbreytt reynsla hefur mótað þær sem leiðtoga.
Lára rifjaði upp fjölbreyttan bakgrunn sinn, meðal annars frá námi erlendis og störf í banka og nýsköpunarumhverfinu, hún lagði áherslu á mikilvægi skýrra boðleiða og teymisvinnu sem ríkir sannarlega hjá Sjóvá. Elín Þórunn, sem hefur starfað hjá Sjóvá í 14 ár, ræddi um gildi þess að þróast í starfi og vinna með fólki sem ögrar manni. Sigríður Vala deildi reynslu sinni úr fjármálageiranum og mikilvægi þess að finna jafnvægi milli áskorana og vellíðunar í starfi.
Sjóvá var stofnað árið 1918 og hefur það hlutverk að stuðla að betra samfélagi með fræðslu, forvörnum og öflugri þjónustu. Félagið þjónustar í dag um 85.000 einstaklinga, 43.000 fjölskyldur og tæplega 9.000 fyrirtæki, með 189 starfsmenn á 16 starfsstöðvum um allt land.
Áhersla var lögð á að árangur fyrirtækisins byggist á sterkri keðju þar sem ánægðir starfsmenn leiða til ánægðra viðskiptavina. Sjóvá hefur verið efst tryggingafélaga í íslensku ánægjuvoginni í níu ár í röð og markvisst unnið að því að byggja upp traust í geira þar sem það er oft takmarkað. Þær sögðu frá því að fyrir nokkrum árum mældust þau neðst og því er þetta gríðarlega stór áfangi að hafa komist á toppinn og haldist þar níu ár í röð. Eitt af því sem þær sögðu stoltar frá var meðgöngutrygging þeirra, en það er sér vara og er hægt að breyta henni síðan yfir í barnatryggingu. Sjóvá voru fyrst á Íslandi til að bjóða upp á meðgöngutryggingu.
Tjónaþjónusta félagsins gegnir lykilhlutverki en þar er starfsfólk á vakt allan sólarhringinn til að bregðast hratt við og lágmarka tjón. Slík viðbrögð hafa ekki aðeins áhrif á upplifun viðskiptavina heldur einnig á framtíðariðgjöld og rekstur félagsins í heild.
Einnig var farið yfir mannauðsmál en Sjóvá leggur áherslu á jafnt kynjahlutfall, fjölbreytta reynslu og sterka starfsþróun. Um helmingur ráðninga á síðasta ári var innanhúss, sem endurspeglar tækifæri starfsfólks til að vaxa innan fyrirtækisins. Aldursdreifing er jöfn og meðalstarfsaldur er rúm 9 ár, sem bendir til stöðugleika og ánægju í starfi.
Þá var tæknimálum gerð góð skil en Sjóvá rekur öflugt og nútímalegt tækniumhverfi þar sem gervigreind gegnir sífellt stærra hlutverki. Um helmingur fyrirspurna er nú afgreiddur sjálfvirkt, en jafnframt var lögð áhersla á að tæknin ein og sér skili ekki bara árangri heldur sé mannlegi þátturinn lykilatriði.
Að lokum var farið yfir markaðsstarf og samfélagsábyrgð félagsins.
Sjóvá hefur t.d. styrkt Landsbjörg í 27 ár og er aðalstyrktaraðili Landsbjargar allt frá 1999. Sjóvá hefur unnið náið með öðrum fyrirtækjum líkt og t.d. Samgöngustofu til að sporna gegn farsímanotkun undir stýri. Nýleg herferð þar sem raunverulegir viðskiptavinir voru í forgrunni vakti mikla athygli og bárust hundruð umsókna á örfáum dögum. Þá hefur samstarf við Geðhjálp skilað umtalsverðum styrkjum til geðheilbrigðismála og bentu þær á heimasíðuna ánægja er þar sem hægt er að skrifa inn það sem veitir okkur ánægju og um leið styrkja Geðhjálp í boði Sjóvá. Heimsóknin var afar fræðandi og veitti innsýn í hvernig skýr stefna, öflug fyrirtækjamenning og fókus á fólk getur skapað framúrskarandi árangur í samkeppnisumhverfi sem tryggingaheimurinn er.









