
Ungar athafnakonur héldu nýverið viðburð í húsakynnum Samtaka atvinnulífsins þar sem þær Lína Birgitta Sigurðardóttir, athafnakona og stofnandi Define the Line, og Yesmine Olsson, eigandi Funky Bhangra, deildu reynslu sinni af rekstri, mistökum, áskorunum og því að byggja upp fyrirtæki út frá eigin sýn og gildum.

Lína Birgitta ræddi opinskátt um þá lærdóma sem hún hefur tekið með sér úr gjaldþroti og hvernig sú reynsla hafi mótað hana sem stjórnanda og frumkvöðul. Hún lagði áherslu á mikilvægi þess að vera inn í öllum þáttum rekstursins, sérstaklega fjármálunum, og hvatti þátttakendur til að skilja eigin fyrirtæki til hlítar. Þá sagði hún frá því hversu erfitt en mikilvægt það hafi verið að læra að sleppa tökunum og fá annað fólk með sér í verkefnið.
Hún lýsti því hvernig hún hafi áður reynt að gera allt sjálf, allt frá markaðssetningu yfir í pantanir og þjónustu við viðskiptavini, en að með tímanum hafi hún áttað sig á því hversu mikilvægt væri að dreifa álaginu og nýta eigin tíma þar sem hann skilar mestum verðmætum. Sérstaklega nefndi hún hversu miklum mun það hafi skipt að færa reksturinn yfir í Gorilla vöruhús og fá starfsfólk með sér í verkefnið.
Lína ræddi einnig um samanburð og hversu auðvelt sé að missa sköpunargleðina þegar fólk ber sig stöðugt saman við aðra. Hún hvatti konur til að halda í eigin sýn, treysta innsæinu og skapa eitthvað sem væri þeirra eigið í stað þess að reyna að líkjast samkeppninni. Þá stóð upp úr þegar hún sagði: „Mistök eru leiðarvísir,“ og lagði áherslu á að læra af reynslunni í stað þess að láta hana stoppa sig.

Yesmine Olsson sagði frá afar fjölbreyttri vegferð sinni en hún hefur starfað sem dansari, danshöfundur, einkaþjálfari, næringarþjálfari og nú starfar hún í veitingabransanum. Hún sagði frá því hvernig ástin á matargerð og menningu hafi smám saman leitt hana inn í rekstur Funky Bhangra, en nafnið vísar í pakistanskan dans sem á að endurspegla mat sem „lætur mann vilja byrja að dansa.“
Yesmine sagði frá því hvernig hún fór til Indlands og síðar New York til að læra indverska matargerð og kryddfræði áður en hún gaf út matreiðslubók. Hún deildi einnig reynslu sinni af því að vera fyrsta manneskjan af erlendum uppruna með eigin sjónvarpsþátt hér á landi og hvernig hún hafi í gegnum tíðina þurft að treysta eigin innsæi þrátt fyrir gagnrýni og efa annarra.
Þá ræddi hún mikilvægi þess að hafa gott fólk í kringum sig og að finna samstarfsfólk sem deilir sömu sýn og gildum. Hún sagði frá því hvernig hún og eiginmaður hennar byggðu upp Funky Bhangra saman, opnuðu þrjá veitingastaði og matarvagn, og hvernig þau hafi lært að taka áhættur, laga sig að aðstæðum og treysta því sem þau væru að skapa.
Í lok viðburðar settust þær Lína og Yesmine með Athenu stjórnarkonu og svöruðu spuringum úr sal. Þar var meðal annars rætt um ótta við mistök, mikilvægi þess að þora að byrja og hvernig fólk geti fundið sitt eigið virði í rekstri og lífinu almennt. Báðar lögðu þær áherslu á að mistök væru óhjákvæmilegur hluti af ferðalaginu og að mikilvægt væri að vera ekki of hörð við sjálfa sig.
Viðburðurinn var afar einlægur og hvetjandi og veitti félagskonum innsýn í raunveruleika frumkvöðlalífsins, þar sem bæði áskoranir og árangur ganga hönd í hönd. Kvöldið stóð eftir sem áminning um að bestu hlutirnir gætu enn verið fram undan.





