
Fráfarandi og nýkjörin stjórn UAK
Fv.efri: Þóra Ólafsdóttir, Ingveldur Gröndal, Drífa Guðrún Þorvaldsdóttir, Birta María Birnisdóttir, Erla Ágústsdóttir og Athena Neve Leex.
Fv. Neðri: Embla Líf Hallsdóttir, Alma Stefánsdóttir, Guðrún Karitas Blomsterberg, Katrín Birna Kristensen, Melkorka Mist Gunnarsdóttir og Hildur Ólafsdóttir. Á myndina vantar Höllu Kareni og Guðleifu Aþenu.
Aðalfundur ungra athafnakvenna fór fram þriðjudagskvöldið 26.maí 2026 í húsakynnum KPMG. Kvöldið hófst á ávarpi fyrrum formanni þar sem farið var yfir liðið starfsár sem samanstóð af fjölmörgum fjölbreyttum viðburðum. Athena fyrrum varaformaður UAK fór yfir ársreikninginn. Félagið kom út í hagnaði í ár og kynnt spennandi verkefni sem væri í bígerð, að fá nýja heimasíðu fyrir félagið. Stjórn UAK lagði til að félagsgjöld fyrir næsta starfsár fari úr 9.500kr. Og hækki í 10.500kr.- sú tillaga var samþykkt. Næst var komið að frambjóððendum, alls voru ellefu í framboði til stjórnar og þar af voru tvær að bjóða sig fram til formannskjörs.
Eftirfarandi konur voru í framboði:
Oddný Einarsdóttir, María Kristjánsdóttir, Margrét Lilja Burrell (í stjórn og formannsframboði), Katrín Birna Kristensen, Hrafnhildur Júlía Guðjónsdóttir, Hildur Ólafsdóttir, Guðrún Karitas Blomsterberg, Guðleif Aþena Magnúsdóttir, Erla Ágústsdóttir, Embla Líf Hallsdóttir (í formannsframboði), Drífa Guðrún Þorvaldsdóttir.
Nýkjörin stjórn UAK 2026-2027

Fv uppi: Ingveldur Gröndal, Alma Stefánsdóttir, Katrín Birna Kristensen, Embla Líf Hallsdóttir (nýr formaður UAK)
Fv niðri: Drífa Guðrún Þorvaldsdóttir, Hildur Ólafsdóttir, Guðrún Karitas Blomsterberg og Erla Ágústsdóttir. Á myndina vantar Guðleifu Aþenu Magnúsdóttur nýkjörnu stjórnarkonu.
KPMG erindi

Á meðan atkvæðin voru talin fengu félagskonur innsýn inn í starfsemi og stöðu KPMG. Eva Kristjánsdóttir partner hjá KPMG fór yfir starfsemi fyrirtækisins og eigin starfsvegferð. Hún ræddi einnig jafnréttismál innan fyrirtækisins og sagði frá markmiðum KPMG um aukið jafnvægi í kynjahlutfalli stjórnenda. Eva sagði frá eigin reynslu sem fyrsta konan á sínu sviði innan upplýsingatæknideildar KPMG. Hún hvatti félagskonur til að efla tengslanet sitt, finna sér góðar fyrirmyndir og muna að þær væru sjálfar mikilvægar fyrirmyndir fyrir aðrar konur í atvinnulífinu. Eftir frábært erindi Evu voru úrslit tilkynnt:
Þær sem halda áfram tveggja ára stjórnarsetu sinni eru Ingveldur Gröndal, Alma Stefánsdóttir og Embla Líf Hallsdóttir. Þær sem buðu sig fram í ár og hlutu kjör til stjórnar voru Drífa Guðrún Þorvaldsdóttir, Erla Ágústsdóttir, Guðleif Aþena Magnúsdóttir og Katrín Birna Kristensen. Varamenn stjórnarárið 2026-2027 eru Guðrún Karitas Blomsterberg og Hildur Ólafsdóttir.
Eftirfarandi konur voru í framboði:Oddný Einarsdóttir, María Kristjánsdóttir, Margrét Lilja Burrell (í stjórn og formannsframboði), Katrín Birna Kristensen, Hrafnhildur Júlía Guðjónsdóttir, Hildur Ólafsdóttir, Guðrún Karitas Blomsterberg, Guðleif Aþena Magnúsdóttir, Erla Ágústsdóttir, Embla Líf Hallsdóttir (í formannsframboði), Drífa Guðrún Þorvaldsdóttir.
Á meðan atkvæðin voru talin fengu félagskonur innsýn inn í starfsemi og stöðu KPMG. Eva Kristjánsdóttir partner hjá KPMG fór yfir starfsemi fyrirtækisins og eigin starfsvegferð. Hún ræddi einnig jafnréttismál innan fyrirtækisins og sagði frá markmiðum KPMG um aukið jafnvægi í kynjahlutfalli stjórnenda. Eva sagði frá eigin reynslu sem fyrsta konan á sínu sviði innan upplýsingatæknideildar KPMG. Hún hvatti félagskonur til að efla tengslanet sitt, finna sér góðar fyrirmyndir og muna að þær væru sjálfar mikilvægar fyrirmyndir fyrir aðrar konur í atvinnulífinu.
Eftir frábært erindi Evu voru úrslit tilkynnt:
Þær sem halda áfram tveggja ára stjórnarsetu sinni eru Ingveldur Gröndal, Alma Stefánsdóttir og Embla Líf Hallsdóttir. Þær sem buðu sig fram í ár og hlutu kjör til stjórnar voru Drífa Guðrún Þorvaldsdóttir, Erla Ágústsdóttir, Guðleif Aþena Magnúsdóttir og Katrín Birna Kristensen. Varamenn stjórnarárið 2026-2027 eru Guðrún Karitas Blomsterberg og Hildur Ólafsdóttir.














