Viðburður fer fram: 14/04/2026
Klukkan: 5:00 e.h. - 7:00 e.h.
Hvar: Sjóvá, Kringlan 5
Sjóvá býður félagskonum UAK í heimsókn til að kynnast þeirra starfsemi betur. Húsið opnar 17:00 og viðburðurinn hefst kl 17:30.
Sjóvá er eitt af leiðandi tryggingafélögum á Íslandi og veitir alhliða tryggingaþjónustu til einstaklinga og fyrirtækja. Starfsemi félagsins felst í að greina áhættu, fyrirbyggja tjón og tryggja viðskiptavinum fjárhagslegt öryggi þegar óvænt atvik eiga sér stað. Sjóvá leggur ríka áherslu á framúrskarandi þjónustu og góða fyrirtækjamenningu.
Í heimsókninni munum við fá að heyra frá Láru, Elínu Þórunni og Sigríði Völu sem starfa hjá Sjóvá. Við erum afar þakklátar að Sjóvá sé einn af styrktaraðilum UAK.
Lára Hrafnsdóttir
Lára Hrafnsdóttir er markaðsstjóri Sjóvá. Hún hefur starfað lengi á sviði markaðsmála meðal annars hjá Saxo Bank í Kauphannahöfn, Arion Banka og nú síðast sem markaðsstjóri hjá íslenska nýsköpunarfyrirtækinu Lucinity. Hún er með tvöfalda meistaragráðu í markaðsfræði og stjórnun frá Copenhagen Business School.
Elín Þórunn Eiríksdóttir
Elín Þórunn Eiríksdóttir er framkvæmdastjóri tjónasviðs hjá Sjóvá. Hún er Cand.Oecon í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.
Elín hefur víðtæka stjórnunarreynslu og hefur áður gegnt lykilhlutverkum hjá Sjóvá, Símanum og Eimskip. Hún hefur setið í stjórnum fjölda fyrirtækja og situr í dag í stjórn Veitna.
Sigríður Vala Halldórsdóttir
Sigríður Vala er framkvæmdastjóri fjármála og upplýsingatækni hjá Sjóvá, þar sem hún ber ábyrgð á innheimtu, reikningshaldi, upplýsingatækni og viðskiptagreind.
Hún er með M.Sc. í iðnaðarverkfræði frá University of Minnesota og B.Sc. frá Háskóla Íslands, auk prófs í verðbréfaviðskiptum.
Sigríður Vala hefur víðtæka reynslu úr fjármálageiranum, meðal annars frá Sjóvá, Creditinfo og Íslandsbanka, og situr í stjórnum Viðskiptaráðs Íslands og Ísfélags hf.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Skráning
Skráning er lokuð.




